# 3stig – íslenskur körfubolti — Fréttir, leikir og staðan

> Fréttir, leikir og staðan (iPhone/iPad app by Gisli Orn Gislason.)

- Source: https://appshunter.io/ios/app/3stig-islenskur-korfubolti/id6818774909 (this page in markdown: same URL + `.md`)
- Developer: [Gisli Orn Gislason](https://appshunter.io/developer/6783322167)
- Category: Sports, News
- Price: Free
- Age rating: 4+
- Requires: iOS 16.4 · 47 MB
- Languages: Icelandic
- Released: 2026-10-26
- Data updated: 2026-10-31

## What is 3stig?

3stig er langbesta appið fyrir íslenskan körfubolta. Allar fréttir, allir leikir, staðan í deildunum og tölfræði tímabilsins – á einum stað, á íslensku.

LEIKIR Í BEINNI
Stigin, leikhlutinn og klukkan uppfærast á meðan leikurinn stendur yfir. Opnaðu leikinn og sjáðu stigatöflu eftir leikhlutum, leikmannatölfræði beggja liða, samanburð liðanna og atburðarásina – stig fyrir stig.

ÞITT LIÐ
Veldu liðin sem þú heldur með. Þá færðu push-tilkynningu á leikdegi, tilkynningu þegar leikurinn er að hefjast og lokatölurnar þegar honum lýkur. Fréttir af þínu liði safnast saman á einum stað og næstu leikir eru alltaf við höndina. Þú ræður sjálf(ur) hvaða tilkynningar þú færð.

FRÉTTIR FRÁ ÖLLUM HELSTU MIÐLUM
Körfuboltafréttir frá mbl.is, RÚV, KKÍ og Körfunni í einum straumi, merktar eftir uppruna. Lestu fyrirsögnina og opnaðu fréttina hjá útgefanda.

STAÐAN OG TÖLFRÆÐI
Stöðutöflur Bónus deildar karla og kvenna og 1. deildar karla og kvenna, með úrslitakeppnislínu. Tölfræðihornið sýnir stigahæstu leikmenn, fráköst, stoðsendingar, skotnýtingu og fleira yfir tímabilið – meðaltal eða samtals, deildarkeppni eða úrslitakeppni.

ALLT TÍMABILIÐ
Leikjaplanið liggur fyrir alla leiktíðina. Flettu fram og til baka í dagatalinu, sjáðu úrslit síðustu daga og hvenær þitt lið spilar næst. Ef leik er frestað eða hann færður sérðu það í appinu.

HLAÐVÖRP
Körfuboltahlaðvörpin spilast beint í appinu með svefntíma, hraðastillingu og minni um hvar þú varst.

Appið er frítt. Auglýsingar eru merktar og aldrei fleiri en ein á hverjum skjá. Gögn um leiki koma frá Körfuknattleikssambandi Íslands.

## Is 3stig safe?

Not enough ratings yet to assess 3stig.

## Is 3stig legit?

3stig – íslenskur körfubolti has limited verification signals. The AppsHunter Legitimacy Score for 3stig is 58 out of 100 points across 7 verification signals from App Store and developer data.


## Version history (last 4 releases)

### 1.2.1 — 2026-10-31

- Endurhönnuð síða hvers liðs og Mitt lið: Yfirlit, Leikir og Leikmenn
- Dagsetning á hverjum leik
- Stórar tölur (100+) passa betur í "skorkortin"
- Ýmsar lagfæringar

### 1.2.0 — 2026-10-29

• Úrvalslið umferðarinnar og leikmaður mánaðarins, undir Staðan › Tölfræði
• Liðssíður með leikmönnum og tölfræði tímabilsins
• Form síðustu fimm leikja og árangur tímabilsins hjá hverju liði
• Leikmannaspjald með meðaltölum og síðustu leikjum
• Umfjöllun 3stig beint á leikjasíðunni
• Ýmsar lagfæringar

### 1.1.0 — 2026-10-28

• Ýttu á leikmann í tölfræði leiks og sjáðu núverandi tölur bornar saman við meðaltal tímabilsins.
• Auðveldara að kveikja á tilkynningum þegar þú bætir við liði.
• Leikir birtast alltaf með heimaliðið fyrst.
• Senda ábendingu í Stillingum: segðu okkur frá villu eða hugmynd.
• Ýmsar lagfæringar á tölfræði og útliti.

### 1.0 — 2026-10-26

No release notes.

## More apps by Gisli Orn Gislason

- [Pungar](https://appshunter.io/ios/app/pungar/id6783322165)

All apps by Gisli Orn Gislason: https://appshunter.io/developer/6783322167

## Related topics

[hos tove](https://appshunter.io/ios/topics/hos-tove)

---

*Data collected daily from the US App Store and indexed by [AppsHunter](https://appshunter.io/). User reviews are verbatim App Store reviews. Ratings, prices and chart positions refresh continuously; this snapshot is from 2026-10-31.*
