# Bóki — Kvittanir og bókhald

> Kvittanir og bókhald (iPhone/iPad app by Bóki hugbúnaður ehf.)

- Source: https://appshunter.io/ios/app/boki/id6800672442 (this page in markdown: same URL + `.md`)
- Developer: [Bóki hugbúnaður ehf](https://appshunter.io/developer/6800672444)
- Category: Business, Finance
- Price: Free
- Age rating: 4+
- Requires: iOS 15.1 · 45 MB
- Languages: American English, Icelandic
- Released: 2026-09-30
- Data updated: 2026-10-05
- User reviews in markdown: https://appshunter.io/ios/app/boki/id6800672442/reviews.md

## What is Bóki?

Bóki er bókhaldsþjónusta fyrir íslensk lítil og meðalstór fyrirtæki. Appið er fyrir áskrifendur að Bóka og gerir þér kleift að sinna daglega bókhaldinu úr símanum – kvittanir, rafrænir reikningar og samskipti við bókarann þinn.

KVITTANIR Á SEKÚNDUM
Taktu mynd af kvittun og Bóki les hana, finnur seljanda, upphæð og virðisaukaskatt og bókar hana á réttan bókhaldslykil. Innbyggð myndavél með sjálfvirkum fókus tryggir skýra mynd. Þú velur hvernig var greitt – með korti, millifærslu, af starfsmanni, í lausafé eða í reikningsviðskiptum.

YFIRLIT YFIR KVITTANIR
Sjáðu allar kvittanir félagsins, stöðu þeirra í vinnslu og hvað er bókað. Leitaðu eftir seljanda eða upphæð.

RAFRÆNIR REIKNINGAR
Innkomnir rafrænir reikningar birtast í appinu um leið og þeir berast. Skoðaðu þá og samþykktu með einum smelli.

SPJALL VIÐ BÓKARANN
Sendu bókaranum þínum spurningu, mynd eða PDF-skjal beint úr appinu og fáðu svar á sama stað.

TILKYNNINGAR
Fáðu tilkynningu þegar rafrænn reikningur berst, þegar bókarinn svarar eða þegar athygli þín þarf.

ÍSLENSKA OG ENSKA
Appið er á íslensku og ensku – skiptu um tungumál hvenær sem er.

---

Appið er ætlað áskrifendum að Bóka. Skráning og stofnun félags fer fram á app.boki.is. Bókhaldsgögn eru varðveitt í samræmi við lög um bókhald nr. 145/1994.

Persónuverndarstefna: app.boki.is/personuvernd
Nánar um Bóka: boki.is


## Version history (last 1 release)

### 1.0 — 2026-09-30

No release notes.

---

*Data collected daily from the US App Store and indexed by [AppsHunter](https://appshunter.io/). User reviews are verbatim App Store reviews. Ratings, prices and chart positions refresh continuously; this snapshot is from 2026-10-05.*
