# Dulur krakkar — íslenskir leikir fyrir börn

> íslenskir leikir fyrir börn (iPhone/iPad app by Eydis Agustsdottir.)

- Source: https://appshunter.io/ios/app/dulur-krakkar/id6798343101 (this page in markdown: same URL + `.md`)
- Developer: [Eydis Agustsdottir](https://appshunter.io/developer/1894822734)
- Category: Games, Education, Puzzle, Word
- Price: Free
- Age rating: 4+
- Requires: iOS 15.1 · 92 MB
- Languages: American English, Danish, Icelandic, Norwegian Bokmål, Swedish
- Released: 2026-08-13
- Data updated: 2026-10-08
- User reviews in markdown: https://appshunter.io/ios/app/dulur-krakkar/id6798343101/reviews.md

## What is Dulur krakkar?

Dulur Krakkar er safn 64 leikja fyrir börn frá leikskólaaldri og upp á unglingsár. Leikirnir eru fyrst og fremst skemmtilegir, og í leiðinni æfa börnin lestur, stafsetningu, stærðfræði, rökhugsun og fjármálalæsi.

LEIKIR FYRIR ÖLL ALDURSSTIG
• Leikskóli (3–5 ára): dýr, litir og form, talning, skuggaleikur, stærra eða minna og formaþrautir
• Yngsta stig (6–8 ára): stafir og orð, rím, atkvæði, lestrarsögur, samlagning og frádráttur, mynstur og rökþrautir
• Miðstig (9–12 ára): klukkan, margföldun, brot, fánar, heimsálfur, sólkerfið, málfræði, stafsetning og forritun
• Lífsleikni (10–15 ára): laun og launaseðlar, skattar, sparnaður, lán og vextir, fyrsta íbúðin, neytendaréttur, netsvindl, skyndihjálp og tilfinningar

NÝTT: BEKKIR OG KENNARAR
Kennari býr til bekk og gefur nemendum kóða. Nemendur ganga í bekkinn með kóðanum, velja sér gælunafn og dýr og safna stjörnum fyrir bekkinn, hvort sem þau spila í appinu eða á vefnum. Í Keppnisstund keppir allur bekkurinn saman í spurningakeppni í rauntíma.

Kennarar skrá sig inn í appinu og hafa aðgang að öllu kennarasvæðinu: yfirliti yfir bekkinn, stigatöflu og liðum, Fjörkassanum, sýningarham fyrir skjávarpa, Keppnisstund og Leikjasmiðjunni, þar sem kennarar búa til eigin leiki úr námsefninu.

ÖRUGGT FYRIR BÖRN
• Engar auglýsingar og engin kaup í forriti
• Börn þurfa hvorki netfang né lykilorð
• Í bekk nota börn gælunafn og þurfa ekki að gefa upp raunverulegt nafn
• Stillingar, innskráning kennara og allir tenglar út úr appinu eru á bak við spurningu fyrir fullorðna

Appið er í boði á íslensku, ensku, dönsku, norsku og sænsku.

Persónuvernd: https://www.dulur.is/krakkar/personuvernd


## Version history (last 3 releases)

### 1.2.0 — 2026-09-23

Stærsta uppfærslan hingað til!
• Appið er nú á fimm tungumálum: íslensku, ensku, dönsku, norsku og sænsku
• Bekkir: nemendur ganga í bekk með kóða frá kennaranum og spila í appinu eða á vefnum
• Keppnisstund: spurningakeppni í rauntíma fyrir allan bekkinn
• Kennarasvæði: kennarar skrá sig inn og stjórna bekkjunum sínum beint í appinu
• 64 leikir, þar af 25 nýir

### 1.1.0 — 2026-08-13

New game
Added content
Bug fixes

### 1.0 — 2026-08-13

No release notes.

## More apps by Eydis Agustsdottir

- [Dulur](https://appshunter.io/ios/app/dulur/id6762608535)

All apps by Eydis Agustsdottir: https://appshunter.io/developer/1894822734

---

*Data collected daily from the US App Store and indexed by [AppsHunter](https://appshunter.io/). User reviews are verbatim App Store reviews. Ratings, prices and chart positions refresh continuously; this snapshot is from 2026-10-08.*
