# FROSKALEIKUR - SKÓLAMEISTARINN - Listin að lesa

> Educational game for Icelandic children to learn speech sounds and early literacy skills. (iPhone/iPad app by Raddlist.)

- Source: https://appshunter.io/ios/app/froskaleikur-skolameistarinn-listin-a-lesa/id881413112 (this page in markdown: same URL + `.md`)
- Developer: [Raddlist](https://appshunter.io/developer/633990870)
- Category: Education, Games, Family
- Price: Free
- Rating: 5.00/5 from 2 App Store ratings · 2 written reviews indexed
- Age rating: 4+
- Requires: iOS 8.0 · 513 MB
- Languages: English
- Released: 2014-11-18
- Data updated: 2026-06-10
- Monetization: free
- User reviews in markdown: https://appshunter.io/ios/app/froskaleikur-skolameistarinn-listin-a-lesa/id881413112/reviews.md

## What is FROSKALEIKUR?

ÖLL MÁLHLJÓÐIN í íslensku eru æfð í Froskaleikurinn - Skólameistarinn. Þar segir frá froskinum Hoppa sem missir málið eftir að galdrakarl lagði á hann álög. Í skemmtilegum hljóðgreiningarleik þarf Hoppi að leysa ýmsar þrautir til að komast í galdrakastalann sem geymir lausnina að því að hann nái málinu aftur. Börnin hjálpa Hoppa að finna galdrabókina, töfrasprotann og lykilinn að kastalanum. Þar þarf að brugga galdraseyði fyrir Hoppa svo hann fái málið aftur. Íslensku málhljóðin eru æfði í erfiðleikaröð með æfingum í hljóðavitund, hljóðgreiningu, tengingu hljóðs við bókstaf, mynd af orði og skrifuðu orði. Allt eru þetta mjög mikilvægir þættir í hljóðkerfisvitund og nefnuhraða til undirbúnings læsi og lesfimi. Bókstafir málhljóðanna sem ekki eru sögð fremst í orðum eru merktir sérstaklega þar sem þeir koma fyrir í orðunum.
Þar eru hljóð aftast og í miðju (ng, ð, mjúka G). 
Sólin í hverju borði gefur greinargóðar upplýsingar um hvað á að gera hverju sinni. 
 
Höfundur smáforritsins er talmeinafræðingur með margra ára reynslu í starfi á Íslandi. Byggt er á rannsóknum um hvaða grunnfærni einstaklingur þarf að hafa til að læra að lesa; m.a. ákveðnum þáttum í hljóðkerfisvitund og úrvinnslu, vitund um letur, gott talmál og að kalla fram hljóðrænar upplýsingar í orðaminni þegar þekkja á skrifuð orð. Allir þessir þættir stuðla að lestrarnákvæmni og lestraröryggi sem er forsenda sjálfvirkni í lestri.
 
Góður málskilningur og orðaforði er undirstaða fyrir góðan lesskilning. Í smáforritinu eru hundruð orða kennd með íslenskum teikningum Höllu Sólveigar Þorgeirsdóttur og Búa Kristjánssonar auk þess sem öll orð eru talsett af Védísi Hervöru Árnadóttur og Felix Bergssyni.

Mikilvægar ábendingar frá Hoppa froski: 
Smellið á blikkandi sjónvarp efst uppi til hægri til að heyra söguna í upphafi. 

Borðin í Froskaleiknum eru læst þannig að í fyrstu umferð verður nemandi að fara í gegnum hvert og eitt hljóð/staf einu sinni og ná öllum 4 stjörnum i hverju leikborði. Annars hoppar Hoppi ekki áfram. Eftir það opnast leikurinn og hægt að velja af handahófi. Markmiðið er kennslufræðilegs eðlis, tryggja sem mest og best nám hjá hverju barni. 

Málhljóðin í Froskaleiknum eru æfð í gegnum leik þar sem lögð er áhersla á:
 
1)  Hljóðavitund. Kynning á bókstaf, hljóði og fingrastafrófi. Þá er fyrirmynd fyrir hljóðið kynnt með vísan í heyrn- sjónrænt minni með lítilli sögu fyrir hvert hljóð
 
2)  Hljóðatenging og umskráning:  lítill/stór stafur. Bókstafur tengdur við hljóðið sem sýnt er með táknmynd  þess. En þar er umskráning æfð sem mikilvæg er til undirbúnings lestrarferlinu. Stjörnugjöf og stika sem sýnir hvar þú ert kominn
 
3)  Hljóðgreining. Hljóð tengt við mynd þar sem tengja þarf rétt hljóð við rétt orð. Stjörnugjöf og stika sem sýnir þér hvar þú ert kominn
 
4)  Hljóðgreining og skrifað orð, nefnuhraði > að þekkja skrifað orð og kalla fram úr orðasafni hljóðrænar upplýsingar. Barnið smellir á skrifuðu orðin til að heyra heiti þeirra, hlustar vel á orðin og velur rétta hljóðamynd fyrir hljóðið. Smám saman tileinkar barnið sér ákveðna sjálfvirkni í að lesa ritháttarmyndina fyrir orðið og tengir við hljóðkerfisvitundina

Forritið er fyrir börn frá 4 – 5 ára aldri og hentar langt fram á grunnskólaaldur, eftir eðli mála. Forritið gefur möguleika á að velja léttari æfingar fyrir byrjendur. Röð hljóða fylgir sömu röð og íslensk börn tileinka sér þau í máltökunni en fylgja ekki hefðbundinni stafrófsröð. Hægt er að skrá nemanda og fylgjast með stöðu hans hverju sinni. Þá er hægt að prenta út upplýsingar og senda þær í tölvupósti.
Engar auglýsingar eru í smáforritinu. Foreldravörn.

Við þökkum eftirtöldum stuðningsaðilum fyrir að stuðla að betri málþroska og læsi íslenskra barna: 
Eftirtalin fyrirtæki gerðu aðlögun smáforritanna í símaútgáfu mögulega: Novator, Norðurál, Hagar, KPMG Íslandi og HS Orka.

Styrkir vegna þróunar Froskaleikja Hoppa: Þróunarsjóður námsgagna, Barnavinafélagið Sumargjöf og Barnamenningarsjóður

## Key features

- Interactive speech sound games
- Phonological awareness exercises
- Letter-sound connection practice
- Visual and auditory learning
- Progress tracking with stars
- Story-based learning quest

## Recent user reviews (2 of 2)

All indexed reviews: https://appshunter.io/ios/app/froskaleikur-skolameistarinn-listin-a-lesa/id881413112/reviews.md

### 5/5 — Absolutely great! My kids love Hoppy frog

*2016-11-17, version 2.0*

My kids are Learning a lot and were excited to move through the sounds and letters towards the castle. How wonderful story, pictures and song for kids! Takk fyrir laga app - við elskum Hoppa frog

### 5/5 — Vel unnið smáforrit

*2014-11-19, version 1.0.1*

Vel unnið smáforrit sem auðvelt er að vinn með og skemmtileg aðferð að kenna börnum hljóðin og efla hljóðkerfis vitund þeirra. Kveðja Leikskólinn Gimli

## Frequently asked questions about FROSKALEIKUR

### What is Froskaleikur?

Froskaleikur is an educational game designed to help children learn Icelandic speech sounds and develop early literacy skills through interactive puzzles and a story-based quest.

### How does Froskaleikur teach speech sounds?

The app uses a variety of exercises focusing on sound awareness, sound identification, connecting sounds to letters, and linking sounds to pictures and written words, all within a gamified experience.

### Is Froskaleikur suitable for all ages?

Froskaleikur has an age rating of 4+ and is specifically designed for young children learning to read and speak Icelandic, making it suitable for preschoolers and early elementary students.

### What learning methodology does Froskaleikur use?

The app is developed by a speech therapist and is based on research into foundational skills for reading, including phonological awareness, phonological processing, letter knowledge, and vocabulary development.

### Does Froskaleikur have ads?

No, Froskaleikur is ad-free, allowing children to focus on learning without interruptions.

### What devices does Froskaleikur support?

Froskaleikur is available on iPhone, iPad, and iPod devices, making it accessible on a range of Apple mobile devices.

### How often is Froskaleikur updated?

The app was last updated on November 7, 2016, with the latest version being 2.0. It was initially released on November 18, 2014.

### What is the user rating for Froskaleikur?

Froskaleikur has a high user rating of 5.0 stars based on 2 ratings, indicating a positive user experience.

## Version history (last 5 releases)

### 2.0 — 2016-11-07

This app has been updated by Apple to display the Apple Watch app icon.

iOS 10 samhæfi

### 1.0.4 — 2015-12-09

Smáforritið er nú tilbúið í iPhone útgáfu auk iPad útgáfunnar. Virkar í iPhone 4 en ekki eins vel og í nýrri tæki.
Bætt notendaviðmót. Hraðari virkni í smáforritinu.
Hljóðskrár í galdraseyði lagfærðar.

### 1.0.3 — 2015-10-12

Smáforritið er nú tilbúið í iPhone útgáfu auk iPad útgáfunnar. Virkar í iPhone 4 en ekki eins vel og í nýrri tæki.
Bætt notendaviðmót. Hraðari virkni í smáforritinu.
Hljóðskrár í galdraseyði lagfærðar.

### 1.0.2 — 2015-10-09

Smáforritið er nú tilbúið í iPhone útgáfu auk iPad útgáfunnar. Virkar í iPhone 4 en ekki eins vel og í nýrri tæki.
Bætt notendaviðmót. Hraðari virkni í smáforritinu.
Hljóðskrár í galdraseyði lagfærðar.

### 1.0.1 — 2014-11-17

No release notes.

## Apps similar to FROSKALEIKUR

| App | Rating | Price | Category |
| --- | --- | --- | --- |
| [Kennsluappið](https://appshunter.io/ios/app/kennsluappi/id1449619343) | — | Free | Education |
| [Galdrabúðin](https://appshunter.io/ios/app/galdrabuin/id1088589876) | — | $4.99 | Education |
| [Tölurnar okkar](https://appshunter.io/ios/app/tolurnar-okkar/id807061420) | 4.0 (1) | $2.99 | Education |
| [Moji Klukki Íslenska](https://appshunter.io/ios/app/moji-klukki-islenska/id622523759) | 2.0 (1) | $1.99 | Education |
| [Karellen](https://appshunter.io/ios/app/karellen/id965769425) | — | Free | Education |
| [Atlas Primer: Audio Learning](https://appshunter.io/ios/app/atlas-primer-audio-learning/id1561918890) | 5.0 (2) | Free | Education |

## More apps by Raddlist

- [Lærum og leikum með hljóðin -D](https://appshunter.io/ios/app/lrum-og-leikum-me-hljoin-d/id633990827)
- [Lærum og leikum - Allt](https://appshunter.io/ios/app/lrum-og-leikum-allt/id667452955)
- [Kids Sound Lab Pro](https://appshunter.io/ios/app/kids-sound-lab-pro/id681462426)
- [Froskaleikur 1 - Listin að lesa](https://appshunter.io/ios/app/froskaleikur-1-listin-a-lesa/id894638709)
- [Froskaleikur 2 - Listin að lesa](https://appshunter.io/ios/app/froskaleikur-2-listin-a-lesa/id894640583)

All apps by Raddlist: https://appshunter.io/developer/633990870

---

*Data collected daily from the US App Store and indexed by [AppsHunter](https://appshunter.io/). User reviews are verbatim App Store reviews. Ratings, prices and chart positions refresh continuously; this snapshot is from 2026-06-10.*
