# Íslenski málhljóðamælirinn

> Icelandic speech screening tool for pronunciation, phonology, and intelligibility assessment. (iPhone/iPad app by Raddlist.)

- Source: https://appshunter.io/ios/app/islenski-malhljoamlirinn/id1148058419 (this page in markdown: same URL + `.md`)
- Developer: [Raddlist](https://appshunter.io/developer/633990870)
- Category: Education, Medical
- Price: $99.99
- Rating: 5.00/5 from 1 App Store ratings · 2 written reviews indexed
- Age rating: 4+
- Requires: iOS 14.0 · 265 MB
- Languages: American English
- Released: 2017-05-24
- Data updated: 2026-07-03
- Monetization: paid
- User reviews in markdown: https://appshunter.io/ios/app/islenski-malhljoamlirinn/id1148058419/reviews.md

## What is Íslenski málhljóðamælirinn?

Fagðilar sem hyggjast nota ÍM skimunartækið þurfa að ljúka réttindanámskeiði hjá Raddlist með fræðslu og þjálfun í að nota skimunartækið í sínum skóla/starfsstöð.

Íslenski málhljóðamælirinn (ÍM) er íslenskt skimunarpróf sem metur framburð, hljóðkerfisþætti og skiljanleika tals hjá öllum aldurshópum (frá 2 ára aldri).
ÍM gefur strax niðurstöður um stöðu í framburði og upplýsir hvaða málhljóð þarf að þjálfa.
Í lok prófunar verður sjálfkrafa til skýrsla/samantekt um getu barns/einstaklings í að bera fram íslensk málhljóð og fram kemur hvaða málhljóð þarf að þjálfa. Prófandi getur bætt eigin athugasemdum inn í skýrsluna, prentað hana út og/eða sent hana beint áfram til þess sem óskað er með leyfi og skv. vinnslusamningi skóla/stofnunar. ÍM hefur innbyggð aldursviðmið barna á tileinkun íslensku málhljóðanna. Hægt er að velja um aldursbil frá 2 - 6 ára í styttri prófun eða leggja allt skimunarprófið fyrir. Skimun metur hvaða börnum þarf sérstaklega að gefa gaum að vegna framburðar m.t.t. áframhaldandi tilvísunar og inngrips strax eftir skimun.
Tækið er sveigjanlegt eftir sérfræðiþekkingu notanda þ.e. hvort um er að ræða talmeinafræðinga, sérkennara, kennara, þroskaþjálfa eða aðra fagaðila.
Skimun kemur ekki í stað prófunar talmeinafræðings.
 
ÍM er byltingarkennt skimunartæki sem býður upp á fjölbreytta möguleika en prófstjórnendur verða alltaf að gæta þess að hafa skrifleg leyfi fyrir fyrirlögn og meðhöndla öll gögn samræmi við
vinnslusamning skóla/stofnunar og persónuverndarfulltrúa sveitarfélagsins. ÍM gefur möguleika á að enginn sé nafngreindur í kerfinu; hvorki prófstjórnandi né próftaki/nemandi.
Fylgja skal leiðbeiningum og verklagi hvers sveitarfélags eins og við á.
 
 
Slakur framburður og hljóðavitund hefur áhrif á hljóðkerfisvitund. Börn í áhættu fyrir lestrarörðugleikum eru illa skiljanleg í tali strax upp úr 2 ára og 4 mánaða aldri. Þau börn sem ennþá eru illa skiljanleg við 5 ára og 10 mánaða aldur sýna slakari getu en jafnaldrar á íslensku prófi sem metur hljóðkerfisvitund og undirbúningsfærni barna fyrir læsi (HLJÓM - 2). Langtímarannsókn (birt í feb. 2016) sýndi að íslensk börn sem fengu slaka niðurstöðu á HLJÓM- prófinu á síðasta ári í leikskóla stóðu verr á samræmdum prófum í íslensku og stærðfræði í 4., 7. og 10. bekk grunnskóla.
Rannsóknir sýna að flest börn ná ákveðnum málhljóðum á mismunandi aldri. Með ÍM verður hægt að draga úr áhyggjum fagfólks og foreldra og grípa til viðeigandi ráðstafana á réttum tímapunkti í lífi barns. Tvær myndasenur; borgarlíf og skógarlíf auk sjóræningamyndbands gefa möguleika á að meta hversu skiljanlegt barnið er í tali. Þær myndasenur má jafnframt nota til að gera óformlega skimun á málskilningi barnsins. Sjá leiðbeiningar: http://laerumogleikum.is/myndasenur-malhljodamaelir/

- Hægt að skima framburð eftir aldri barns og meta hvort um seinkun er að ræða miðað við jafnaldra
- Tekur 5 – 15 mín með tilbúinni samantekt/skýrslu í lokin
- Athugun á 25 samhljóðum í íslensku í fram-, inn- og bakstöðu orða þar sem hljóðin koma fyrir, auk samhljóðaklasa
- Val um að skima framburð sérhljóða
Upptaka og vistun hljóðgagna - vista þarf gögn í samræmi við verkreglur skóla/stofnunar um Persónuvernd
- Skráning athugasemda við hvert hljóð
- Hægt að snúa mynd með/án texta að þeim sem prófaður er
- Hægt að hlusta á hvernig öll orð eru borin fram
- Hægt að bæta við eigin umsögn í skýrslu
- Greint frá stöðu gagnvart greiðsluþátttöku SÍ í talþjálfun
- Sívistun með möguleika á afritun gagna í samræmi við verkreglur skóla/stofnunar um Persónuvernd
- Fleiri en einn prófstjórnandi getur skráð sig inn með sínu lykilorði og notað mælitækið
 
Við þökkum eftirtöldum aðilum fyrir stuðning við þróun Íslenska málhljóðamælisins:
 Þróunarsjóður námsgagna, Barnavinafélagið Sumargjöf, Uppbyggingarsjóður Suðurnesja, Samfélagssjóður Landsbankans.

Frekari upplýsingar:
laerumogleikum.is

## Key features

- Pronunciation and intelligibility assessment
- Phonological element evaluation
- Age-based norms for Icelandic sounds
- Automatic report generation
- Customizable notes and sharing options
- Evaluates 25 Icelandic consonants

## Recent user reviews (2 of 2)

All indexed reviews: https://appshunter.io/ios/app/islenski-malhljoamlirinn/id1148058419/reviews.md

### 5/5 — Frábært mælitæki sem styttir biðlista

*2025-03-19*

Snemmtæk íhlutun. Frábært mælitæki sem styttir biðlista

### 5/5 — Frábært mælitæki sem styttir biðlista

*2024-03-22*

Frábært mælitæki sem styttir biðlista

## Frequently asked questions about Íslenski málhljóðamælirinn

### What is Íslenski málhljóðamælirinn?

Íslenski málhljóðamælirinn (ÍM) is an Icelandic screening test designed to evaluate pronunciation, phonological elements, and speech intelligibility across all age groups, starting from 2 years old. It provides immediate feedback on pronunciation status and identifies specific speech sounds that require training.

### How long does a screening take with Íslenski málhljóðamælirinn?

A screening with Íslenski málhljóðamælirinn typically takes between 5 to 15 minutes to complete. At the end of the assessment, a ready-made summary report is automatically generated.

### What age range does Íslenski málhljóðamælirinn cover?

Íslenski málhljóðamælirinn is designed for all age groups, from 2 years old and upwards. It includes built-in age norms for children's acquisition of Icelandic speech sounds, with options for shorter tests for ages 2-6 or the full screening.

### What kind of report does Íslenski málhljóðamælirinn generate?

Upon completion of the test, Íslenski málhljóðamælirinn automatically generates a clear report summarizing the child's or individual's ability to pronounce Icelandic speech sounds. The report indicates which sounds need to be trained and allows the examiner to add personal notes.

### Can I share the report generated by Íslenski málhljóðamælirinn?

Yes, the report generated by Íslenski málhljóðamælirinn can be printed out or sent directly to the desired recipient, provided there is consent and an agreement in place with the school or institution, adhering to data processing regulations.

### Does Íslenski málhljóðamælirinn require special training to use?

Yes, professionals intending to use the ÍM screening tool are required to complete a certification course provided by Raddlist. This course includes education and training on how to effectively use the screening tool in their school or workplace.

### Is Íslenski málhljóðamælirinn available on multiple devices?

Based on the available data, Íslenski málhljóðamælirinn is supported on iPhone, iPad, and iPod devices. It is designed for use on Apple's mobile operating systems.

### How often is Íslenski málhljóðamælirinn updated?

The latest version of Íslenski málhljóðamælirinn is 1.1.6, and it was last updated on February 6, 2024. This indicates a commitment to ongoing development and maintenance of the application.

## Version history (last 5 releases)

### 1.1.6 — 2024-02-06

Íslenski málhljóðamælirinn hefur farið í gegnum ítarlega skoðun og áhættugreiningu kennsluhugbúnaðar m.t.t. Persónuverndar
Þá er stöðugt fylgst með virkni og stöðugleika forritsins.
Mynd af snuði hefur verið minnkuð.

### 1.1.5 — 2022-06-30

Íslenski málhljóðamælirinn hefur farið í gegnum ítarlega skoðun og áhættugreiningu kennsluhugbúnaðar m.t.t. Persónuverndar
Þá er stöðugt fylgst með virkni og stöðugleika forritsins

### 1.1.4 — 2022-04-14

Stöðugt er verið að bæta virkni og stöðugleika forritsins.

### 1.1.2 — 2018-12-07

Stöðugt er verið að bæta virkni og stöðugleika forritsins. Kröfur um Persónuvernd yfirfarnar. Búið er að yfirfara aldursviðmið og minnka mynd af snuði. Aðrar smávægilegar lagfæringar m.a. um mikilvægi þess að vísa til talmeinafræðings á réttum tímapunkti í lífi barns.

### 1.1.1 — 2018-05-03

Villuleiðréttingar

## Apps similar to Íslenski málhljóðamælirinn

| App | Rating | Price | Category |
| --- | --- | --- | --- |
| [YES Meeting 2022](https://appshunter.io/ios/app/yes-meeting-2022/id1643168140) | — | Free | Education |
| [GASTROENDO 2024](https://appshunter.io/ios/app/gastroendo-2024/id1643839720) | — | Free | Education |
| [PSDH 2022](https://appshunter.io/ios/app/psdh-2022/id1642910540) | — | Free | Education |
| [ATLS Practice Tests 2023](https://appshunter.io/ios/app/atls-practice-tests-2023/id1637081340) | 4.2 (9) | Free | Education |
| [Essential Nursing Vocabulary](https://appshunter.io/ios/app/essential-nursing-vocabulary/id1644985860) | 5.0 (13) | $1.99 | Education |
| [DGGG 2022](https://appshunter.io/ios/app/dggg-2022/id1635141440) | — | Free | Education |

## More apps by Raddlist

- [Lærum og leikum með hljóðin -D](https://appshunter.io/ios/app/lrum-og-leikum-me-hljoin-d/id633990827)
- [Lærum og leikum - Allt](https://appshunter.io/ios/app/lrum-og-leikum-allt/id667452955)
- [Kids Sound Lab Pro](https://appshunter.io/ios/app/kids-sound-lab-pro/id681462426)
- [FROSKALEIKUR - SKÓLAMEISTARINN - Listin að lesa](https://appshunter.io/ios/app/froskaleikur-skolameistarinn-listin-a-lesa/id881413112)
- [Froskaleikur 1 - Listin að lesa](https://appshunter.io/ios/app/froskaleikur-1-listin-a-lesa/id894638709)
- [Froskaleikur 2 - Listin að lesa](https://appshunter.io/ios/app/froskaleikur-2-listin-a-lesa/id894640583)

All apps by Raddlist: https://appshunter.io/developer/633990870

---

*Data collected daily from the US App Store and indexed by [AppsHunter](https://appshunter.io/). User reviews are verbatim App Store reviews. Ratings, prices and chart positions refresh continuously; this snapshot is from 2026-07-03.*
