# Líf — Forsíða internetsins

> Forsíða internetsins (iPhone/iPad app by Gamall Kall.)

- Source: https://appshunter.io/ios/app/lif/id6821725905 (this page in markdown: same URL + `.md`)
- Developer: [Gamall Kall](https://appshunter.io/developer/1790531169)
- Category: Entertainment, Education
- Price: Free
- Age rating: 12+
- Requires: iOS 17.0 · 172 MB
- Languages: Icelandic
- Released: 2026-10-31
- Data updated: 2026-11-06

## What is Líf?

Líf er forsíða internetsins í símanum: teikniverkfæri, leikir, lestur og fróðleikur í einum heimi, allt á íslensku.

KÚLURNAR OG DAGLEGT
Vefirnir svífa sem kúlur á forsíðunni og nýir koma að á hverjum degi. Daglegt býður upp á pör af spjöldum: spurningu dagsins, topp5, orð dagsins, himininn í kvöld, verk dagsins af veggnum og Lífdagatal með því sem er á döfinni. Veðrið glóir þegar norðurljósaspáin er há.

SKAPAÐU ÞITT EIGIÐ
Hannaðu perlumynstur í perlu, klipptu út myndir og raðaðu þeim í klippimyndir í klippi. Verkin geymast í tækinu og þú getur haldið áfram með þau síðar, líka án nettengingar.

TÓNLISTARSMIÐJAN
Settu saman lag á tímalínu með hljóðfærum, trommum, nótum og eigin upptökum. Veldu tónstiga, raðaðu bútum og fluttu lagið út sem WAV, MIDI eða verkefni sem má halda áfram með.

LESTU OG KANNAÐU
Lestu myndasögur í lesara sem man hvar þú varst. Spilaðu Fimm um Ísland og finndu fjöll, jökla, ár og sveitarfélög. Smíðaðu frumeindir í Frumeindasmiðjunni, reiknaðu og teiknaðu gröf í reikni og skoðaðu stjörnuhimininn og reikistjörnurnar. Lestu grein dagsins af íslensku Wikipediu, fylgstu með veðri og jarðhræringum og hlustaðu á hlaðvörp í Hlöðunni.

LEIKJASALURINN
Spilaðu Öldugang í Rækjuvík inni í appinu og fleiri leiki á leikja.líf.is.

SJÓNVARPIÐ Í VASANUM
Horfðu á beina útsendingu í litlu sjónvarpi sem þú getur fært til og stækkað á meðan þú skoðar appið, eða snúðu símanum og horfðu á allan skjáinn.

ÞITT SAFN
Þú getur notað appið án aðgangs. Með Líf auðkenni fylgja verkin, staðurinn í lestrinum og eftirlætin þér á milli apps og vefs. Verkin eru þín og sjást engum nema þú deilir þeim.

ÞINN LITUR
Veldu appmerki í tíu litum, meðal annars regnboga og norðurljósum, teiknað eða úr gleri.

Sumir leikir, vefir og bein útsending þurfa nettengingu. Hlekkir á aðra vefi opnast í glugga inni í Líf. Myndavél, hljóðnemi, staðsetning, prentun og deiling eru aðeins notuð þegar þú velur þær aðgerðir.

IN ENGLISH
Líf is the front page of the internet on your phone: creative tools, games, reading and learning in one world, in Icelandic. Make bead patterns and collages, compose music on a timeline, read comics, play a map quiz about Iceland, build atoms, calculate and graph, explore the night sky, read Icelandic Wikipedia, check weather and earthquakes, and listen to podcasts. Watch the live channel in a movable mini television. Use it without an account, or connect a Líf identity to keep your work in sync. The interface and most content are in Icelandic.

## Is Líf safe?

Not enough ratings yet to assess Líf.

## Is Líf legit?

Líf appears legitimate, with a few gaps. The AppsHunter Legitimacy Score for Líf is 65 out of 100 points across 7 verification signals from App Store and developer data.


## Version history (last 5 releases)

### 1.3.0 — 2026-11-03

Spíran er komin.

• Spíran er nýja merki líf.is og nú líka appmerkið. Gamla orðmerkið er áfram í boði í Mitt líf → Þitt appmerki.
• Spíran þín býr efst á Heim. Hún vex af því sem þú gerir í Líf: rætur þegar þú kemur aftur, vatn þegar þú hlustar á Hlöðuna, sól þegar þú leikur þér eða lærir og blóm þegar þú býrð eitthvað til. Hún lifir í veðrinu, fær vini í heimsókn, deyr aldrei og skammar engan.
• Ný widget á heimaskjáinn í þremur stærðum. Það stóra spilar Hlöðuna beint, opnar Sjónvarpið og Teikni og flettir spjöldum dagsins.
• Spíran á lásskjánum og sem náttljós í StandBy, og tól fyrir Stjórnborð, lásskjá og aðgerðahnappinn.
• Límmiðar í Messages: spíran, humlan, mýið, bíllinn með hendur og Sjónvarpið.

In English: The sprout is the new logo of líf.is and the app icon. Your own sprout lives at the top of Home, grows with what you do in Líf and lives in the real weather. New home screen widgets in three sizes, lock screen widgets, StandBy, controls for Control Center, the lock screen and the Action button, and a sticker pack for Messages.

### 1.2.0 — 2026-11-02

Líf-lyklaborðið er komið.

• Íslensku stafirnir í okkar letri, í öllum öppum símans. ð, æ, ö og þ eru á sínum stað og broddurinn ´ setur brodd á næsta sérhljóða.
• Stafurinn lyftist upp í kúlu undir fingrinum og ferðast til baka þegar þú sleppir. Haltu fingri á staf til að fá broddstafina.
• Orðatillögur úr Beygingarlýsingu íslensks nútímamáls birtast á pappírsröndinni ofan við stafina.
• Lyklaborðið tengist ekki netinu, biður ekki um fullan aðgang og geymir ekkert af því sem þú skrifar.

Kveiktu á því í Stillingum → Almennt → Lyklaborð → Lyklaborð → Bæta við → Líf. Leiðbeiningar eru líka í Mitt líf → Lyklaborðið.

In English: Líf now has its own Icelandic keyboard for every app, in our typeface, with ð, æ, ö and þ in place, an accent key, springy key bubbles and word suggestions from the Database of Icelandic Morphology. It works offline, needs no Full Access and stores nothing you type. Turn it on in Settings → General → Keyboard → Keyboards → Add New Keyboard → Líf.

### 1.1.1 — 2026-11-02

Forsíðan fylgir nú líf.is.

• Sex nýir flokkar, kúluhrúga sem breytist dag frá degi og Daglegt í pörum með Lífdagatali, orði dagsins og himninum í kvöld.
• Veðrið glóir þegar norðurljósaspáin er há.
• Sólkerfið opnar reikistjörnurnar í stjörnuhimninum.
• Hlekkir á aðra vefi opnast nú inni í Líf.

In English: the home screen now follows líf.is, with six new categories, a bubble heap that changes daily and daily cards in pairs, including an events calendar, the word of the day and tonight's sky. Veðrið glows when the aurora forecast is high, and links to other websites open inside Líf.

### 1.1.0 — 2026-11-01

Líf now brings more of its world into one experience on iPhone and iPad.

• Compose music with a native timeline, instruments, drum patterns and voice recordings. Export WAV, MIDI or an editable project, and take your music to Vinnustofan.
• Play Fimm um Ísland and map challenges, collect places, build atoms and explore the night sky.
• Calculate and graph, read Icelandic Wikipedia articles, check the weather and earthquakes, and listen to podcasts in Hlaðan.
• Find the newer Líf tools in the app, with shared navigation and your own private collection.
• Updated Teikni connections, improved Flöskuskeyti layout, and the latest Líf typeface.

The interface and most content are in Icelandic. Online content and syncing require an internet connection.

### 1.0 — 2026-10-31

No release notes.

## More apps by Gamall Kall

- [Myndarsögur](https://appshunter.io/ios/app/myndarsogur/id6740549070)
- [Sjónvarpið](https://appshunter.io/ios/app/sjonvarpi/id6821685817)
- [Líf mý/bý](https://appshunter.io/ios/app/lif-myby/id6822529747)

All apps by Gamall Kall: https://appshunter.io/developer/1790531169

---

*Data collected daily from the US App Store and indexed by [AppsHunter](https://appshunter.io/). User reviews are verbatim App Store reviews. Ratings, prices and chart positions refresh continuously; this snapshot is from 2026-11-06.*
