# Lærum og leikum - Allt — Lærum og leikum með hljóðin

> Interactive Icelandic speech sound education app for children and professionals. (iPhone/iPad app by Raddlist.)

- Source: https://appshunter.io/ios/app/lrum-og-leikum-allt/id667452955 (this page in markdown: same URL + `.md`)
- Developer: [Raddlist](https://appshunter.io/developer/633990870)
- Category: Education, Games, Family
- Price: Free
- Rating: 5.00/5 from 5 App Store ratings · 9 written reviews indexed
- Age rating: 4+
- Requires: iOS 13.4 · 172 MB
- Languages: American English
- Released: 2013-08-07
- Data updated: 2026-06-06
- Monetization: free
- User reviews in markdown: https://appshunter.io/ios/app/lrum-og-leikum-allt/id667452955/reviews.md

## What is Lærum og leikum?

Öll íslensku málhljóðin eru kennd á lifandi og skemmtilegan hátt með fyrirmynd fyrir hvert og eitt hljóð. Heiti bókstafanna og hljóð þeirra eru kennd með íslenska fingrastafrófinu um leið og lestrarferlið er undirbúið. Á sama tíma er réttur framburður hljóða kenndur. Aðferðin byggir á áratuga reynslu talmeinafræðings með áherslu á að veita aðgengilega og faglega leiðsögn til foreldra og skóla.


Smáforritið er ætlað öllum barnafjölskyldum og fagfólki sem vilja veita börnum forskot á hljóðmyndun og undirbúa þau fyrir lestur. Tilvalið fyrir fjölskyldur af erlendum uppruna til að æfa og læra íslensku hljóðin. Rannsóknir sýna marktækan mun á árangri nemenda í 1. bekk í hljóðkerfisvitund og bókstafaþekkingu auk betri getu í heildina á orðaforða þegar skipulega var unnið með Lærum og leikum með hljóðin og Froskaleiki 1,2,3 á leikskólaaldri og í 1. bekk (Gudmundsdottir, 2014. Ævarsdóttir, 2016). Smáforritin Kids Sound Lab PRO og Frog games sem byggja á íslensku forritunum hafa fengið fjölda erlendra viðurkenninga hjá fagaðilum og foreldrum. Árið 2016 var Kids Sound Lab valið eitt af sex bestu forritum í menntun á heimsvísu af BETT. Frá 2017 hafa forrit Raddlistar fengið 5 stjörnu gjöf og viðurkenningu hjá fagnefnd Educational App Store með afar lofsamlegum umsögnum.


Smáforritið, Lærum og leikum með hljóðin, tekur mið af því í hvaða röð íslensk börn tileinka sér talhljóðin í máltökunni og hvernig auðveldast er að kenna hljóðin. Byrja má skipulega á auðveldari hljóðum sem koma fyrir hjá mjög ungum börnum og halda áfram yfir í þau hljóð sem erfiðara er að segja eða velja það hljóð sem æfa þarf sérstaklega hverju sinni.


Lærum og leikum með hljóðin er notað víða í leik- og grunnskólum á Íslandi og er sýnt í barnaefni Stöðvar 2 og um allan heim í Hopster appi Vodafone.

Efnistök forritsins byggja á samnefndum bókum og námsefni Bryndísar Guðmundsdóttur talmeinafræðings.


Lærum og leikum með hljóðin inniheldur:

- Talsetning/söngur Felix Bergsson og Védís Hervör Árnadóttir

- Íslenskar teikningar Búa Kristjánssonar og Höllu Sólveigar Þorgeirsdóttur

- 20 samhljóð í íslensku kynnt með táknmynd fyrir hljóðið

- Sérhljóð í íslensku kynnt sérstaklega

- Röð samhljóða fylgir sömu röð og íslensk börn tileinka sér talhljóðin í máltökunni

- Hægt er að velja í aðalvalmynd hvaða hljóð er valið hverju sinni ef ekki er stuðst við erfiðleikaröðina

- Hægt er að fá lýsingu á talfærastöðu fyrir hvert hljóð

- Öll hljóðin eru æfð í hljóðaleik með hljóðakeðjum; samhljóð með sérhljóði til að tryggja að barnið nái réttu hljóði

- Hljóðtenging er æfð til að undirbúa læsi og styrkja framburð málhljóðanna

- Hljóðin æfð í framstöðu orða nema þau hljóð sem koma eingöngu fyrir í miðju og aftast í orðum

- Ð, NG og ,,mjúka” G, eru æfð aftast og í miðju orða

- R býður upp á meiri aðlögun og fleiri orð í framstöðu orða til að æfa (algengt að börn eigi erfitt með framburð R- hljóðsins)

- Fjórir gagnvirkir leikir auk orðforðaaæfinga með þjálfun setninga 

- Hrós veitt reglulega í forritinu

- Upptaka leyfð á orðum og setningum til að æfa og hlusta en vistast ekki í snjalltækinu

- Foreldravörn aukin

 -Skráning nemenda: nafn, aldur. Engar myndir vistast í tækjum og eða fara í sendingu

- Stigagjöf inni í forritinu

- Árangur sýndur í %

- Skráning athugasemda inni í forritinu

- Upplýsingar um stöðu og athugasemdir má senda í netpósti. Engar myndir áframsendar.

- Hægt er að prenta út samantekt niðurstaða (air print). Engar myndir fara í prentun gagna

- Vistun og sending minnir á verndun gagna m.t.t. Persónuverndar

- Engar auglýsingar



Mennta- og barnamálaráðuneytið, Þróunarsjóður námsgagna og Uppbyggingarsjóður Suðurnesja styrktu nýja útgáfu Lærum og leikum með hljóðin frá grunni í opna útgáfu iOs og vefútgáfu.
Við þökkum tölvunarfræðideild HR og Therapy Box fyrir samstarfið.


Frekari upplýsingar:

http.www.youtube/laerumogleikum

www. laerumogleikum.is

## Key features

- Teaches Icelandic speech sounds
- Uses Icelandic finger alphabet
- Focuses on correct pronunciation
- Interactive games and vocabulary exercises
- Progressive learning based on child development
- Suitable for families and professionals

## Recent user reviews (9 of 9)

All indexed reviews: https://appshunter.io/ios/app/lrum-og-leikum-allt/id667452955/reviews.md

### 5/5 — Uppáhalds

*2024-10-31, version 3.0*

Besta efni fyrir íslenskuna

### 5/5 — Frábært efni

*2024-10-31, version 3.0*

Takk

### 5/5 — Leikskólinn Gimli

*2024-10-10, version 3.0*

Við notum mikið lærum og leikum með hljóðin á Gimli með nemendum okkar. Við mælum mikið með þessu forriti. Það er sett upp á svo skemmtilegan hátt og börnin læra hljóðin í gegnum leikinn. Takk fyrir að koma með svona frábært tæki til að hjálpa þeim að læra hljóðin á skemmtilegan hátt og þessi nýja útgáfa er alveg til fyrirmyndar.

### 5/5 — Bjarnveig

*2018-10-07, version 2.6*

Frábært app fyrir breiðan aldurshóp.

### 5/5 — Nýtist vel samhliða stafainnlögn

*2013-09-04, version 1.1*

Lærum og leikum með hljóðin er gagnvirkt, fangar athygli og gerir vinnu með framburð að skemmtilegum leik. Hentar vel samhliða stafainnlögn í kennslu og til auka æfinga. Áhrifaríkt og skemmtilegt fyrir börn, foreldra og kennara.

### 5/5 — Þóra Kolbrún Magnúsdóttir

*2013-08-20, version 1.1*

Loksins,loksins

Eftir marga tíma hjá talmeinafræðing með elsta strákinn okkar er loksins komið frábært kennsluefni sem við foreldrarnir getum nýtt heima.Er með 3 börn sem eiga öll eftir að hafa gagn og gaman af þessu stórsniðuga appi;)

### 5/5 — Frábært

*2013-08-18, version 1.1*

Frábært. Loksins komið íslenskt app sem kennir hljóðin.  Góð viðbót við Lærum og leikum efnið.

### 5/5 — Amazing App! Thank you!

*2013-08-17, version 1.1*

We have a bi-lingual home, English and Icelandic. This has proven to be so helpful for our 2 and 4 year old so they can nurture their Icelandic legacy. Such nice colours, drawings, artwork and music. Great build up and assignments. Takk fyrir Ísland!

### 5/5 — Áhrifaríkt og skemmtilegt fyrir öll börn

*2013-08-17*

Einstaklega àhrifaríkt og skemmtilegt fyrir öll börn og fullordna sem eru ad læra íslensku. Ótrùlega audveld leid til ad kenna börnum hljód og smàm saman læra thau ad lesa òmedvitad. Thetta App ætti ad vera til à hverju heimili!

## Frequently asked questions about Lærum og leikum

### What is Lærum og leikum - Allt?

Lærum og leikum - Allt is an educational app designed to teach Icelandic speech sounds and prepare children for reading. It utilizes interactive methods, the Icelandic finger alphabet, and focuses on correct pronunciation through games and exercises.

### Is Lærum og leikum - Allt free?

Yes, Lærum og leikum - Allt is available for free. It does not have any in-app purchases or advertisements, offering a completely free educational experience.

### What age is Lærum og leikum - Allt suitable for?

Lærum og leikum - Allt is rated for ages 4 and up. Its content and interactive features are designed to be engaging and beneficial for young children developing their language and reading skills.

### What devices does Lærum og leikum - Allt support?

Lærum og leikum - Allt is available on iPhone, iPad, and iPod. It is optimized for Apple's mobile operating systems.

### How often is Lærum og leikum - Allt updated?

The app was last updated on September 20, 2024, with version 3.0. This indicates regular maintenance and potential for new content or feature additions.

### What learning methodology does Lærum og leikum - Allt use?

The app's methodology is based on decades of experience from a speech therapist, focusing on an accessible and professional approach. It teaches sounds in the order Icelandic children naturally acquire them, with options to focus on specific sounds.

### Does Lærum og leikum - Allt offer progress tracking?

While the description highlights interactive games and vocabulary training, specific details on explicit progress tracking features are not provided. However, the structured approach to learning sounds and the inclusion of games suggest an implicit form of progress through engagement.

### Can Lærum og leikum - Allt be used by families who don't speak Icelandic natively?

Yes, the app is specifically mentioned as being ideal for families of foreign origin to practice and learn Icelandic sounds. Its visual and auditory components make it accessible for non-native speakers.

## Version history (last 5 releases)

### 3.0 — 2024-09-20

Appið hefur verið grunnkóðað frá grunni í nýtt kerfi sem bætir virkni. Nýr hljóðtengileikur sem undirbýr læsi og réttan framburð hefur verið þróaður í appið með nýjum íslenskum teikningum og hljóðgögnum. Ýmis uppsetning endurbætt, ný mynd af síma. Aðgangsstýring/foreldravörn hefur verið aukin og öll áhætta takmörkuð á notkun kennslukerfisins. Ef valið er að skrá framfarir nem. er unnt að hafa þær dulkóðaðar. Kyn er ekki skráð. Engar myndir vistast í myndasafni iPadsins eða eru sendar úr tækinu. Enginn aðgangur þriðja aðila er að gögnum. Engar auglýsingar. Rannsóknir sýna góðan árangur af notkun forritsins og forritið er nú uppfært svo allir njóti!  Góðar stundir í að læra og leika!

### 2.6 — 2017-06-02

This app has been updated by Apple to display the Apple Watch app icon.

Við erum alltaf á tánum að bæta virknina hjá okkur. Við fengum nýlega 5 stjörnu viðurkenningu frá Educational App Store með lofsamlegum ummælum frá fagnefndinni þeirra og auðvitað erum við ennþá í skýjunum með Bett 2016 viðurkenninguna og val um að vera eitt af sex bestu forritum í menntun á heimsvísu. Rannsóknir sýna góðan árangur af notkun forritsins og forritið er nú uppfært svo allir njóti með okkur. Góðar stundir í að læra og leika!

### 2.5 — 2016-11-05

iOS 10 update

### 2.3 — 2015-12-12

Enska smáforritið Kids Sound Lab hefur verið valið í lokaúrslit BETT 2016 undir smáforrit í MENNTUN. Það er ensk útgáfa af Lærum og leikum með hljóðin og byggir á sömu aðferðafræði til að kenna hljóðmyndun, orðaforða og undirbúa læsi.

### 2.2.1 — 2015-10-12

Leikurinn er kominn í iPhone útgáfu auk Ipad útgáfunnar. Virkar í iPhone 4 en ekki eins vel og í nýrri tæki. Bætt notendaviðmót.
Hraðari virkni í smáforritinu.

Enska smáforritið Kids Sound Lab hefur verið valið í lokaúrslit BETT 2016 undir smáforrit í MENNTUN. Það er ensk útgáfa af Lærum og leikum með hljóðin og byggir á sömu aðferðafræði til að kenna hljóðmyndun, orðaforða og undirbúa læsi.

## Apps similar to Lærum og leikum

| App | Rating | Price | Category |
| --- | --- | --- | --- |
| [Georg og leikirnir](https://appshunter.io/ios/app/georg-og-leikirnir/id1042234259) | 3.6 (7) | Free | Education |
| [Edify - Learning Effect App](https://appshunter.io/ios/app/edify-learning-effect-app/id1335959887) | — | Free | Education |
| [Play ABC, Alfie Atkins - Full](https://appshunter.io/ios/app/play-abc-alfie-atkins-full/id1444230467) | 4.3 (17) | $6.99 | Education |
| [Stafarugl Snjallkennslu](https://appshunter.io/ios/app/stafarugl-snjallkennslu/id6475969129) | — | Free | Education |
| [Georg og félagar](https://appshunter.io/ios/app/georg-og-felagar/id885638618) | 4.0 (9) | Free | Education |
| [Lesum hraðar](https://appshunter.io/ios/app/lesum-hraar/id1635176157) | — | Free | Education |

## More apps by Raddlist

- [Lærum og leikum með hljóðin -D](https://appshunter.io/ios/app/lrum-og-leikum-me-hljoin-d/id633990827)
- [Kids Sound Lab Pro](https://appshunter.io/ios/app/kids-sound-lab-pro/id681462426)
- [FROSKALEIKUR - SKÓLAMEISTARINN - Listin að lesa](https://appshunter.io/ios/app/froskaleikur-skolameistarinn-listin-a-lesa/id881413112)
- [Froskaleikur 1 - Listin að lesa](https://appshunter.io/ios/app/froskaleikur-1-listin-a-lesa/id894638709)
- [Froskaleikur 2 - Listin að lesa](https://appshunter.io/ios/app/froskaleikur-2-listin-a-lesa/id894640583)

All apps by Raddlist: https://appshunter.io/developer/633990870

## Related topics

[sumup dalespirit](https://appshunter.io/ios/topics/sumup-dalespirit) · [her og nå tips](https://appshunter.io/ios/topics/her-og-n-tips) · [aslinur pekel](https://appshunter.io/ios/topics/aslinur-pekel) · [gjujlf cbvathjgjkm](https://appshunter.io/ios/topics/gjujlf-cbvathjgjkm)

---

*Data collected daily from the US App Store and indexed by [AppsHunter](https://appshunter.io/). User reviews are verbatim App Store reviews. Ratings, prices and chart positions refresh continuously; this snapshot is from 2026-06-06.*
