# Orðaflipp - Fyrir krakka sem þora að skapa

> Creative writing app with random word prompts for children. (iPhone/iPad app by Gebo Kano ehf..)

- Source: https://appshunter.io/ios/app/oraflipp-fyrir-krakka-sem-ora-a-skapa/id866069845 (this page in markdown: same URL + `.md`)
- Developer: [Gebo Kano ehf.](https://appshunter.io/developer/447850798)
- Category: Education, Productivity
- Price: $4.99
- Rating: 5.00/5 from 1 App Store ratings
- Age rating: 4+
- Requires: iOS 8.1 · 111 MB
- Languages: Arabic, Armenian, Catalan, Czech, Danish, Dutch, English, Finnish, French, German and 21 more
- Released: 2014-05-16
- Data updated: 2026-06-24
- Monetization: paid
- User reviews in markdown: https://appshunter.io/ios/app/oraflipp-fyrir-krakka-sem-ora-a-skapa/id866069845/reviews.md

## What is Orðaflipp?

Orðaflipp er íslenskt sköpunarforrit fyrir skáld framtíðarinnar. 
Forritið, sem er hannað af grunnskólakennara, byggir á hugmyndum um handahófskenndar kveikjur í skapandi skrifum. Slík opin verkefni með engum ákveðnum svörum eru til þess gerð að örva sköpun og frumleika í hugsun.
Orðaflipp veitir því tækifæri til að hugsa út fyrir boxið, fylla hausinn af hugmyndum og skemmta sér. Auk þess að vera öflugt sköpunartól þá getur það bætt orðaforða og þjálfað málfræði.
Orðaflipp er þannig gagnlegt tól fyrir skapandi skrif, byrjendalæsi og almenna íslenskukennslu.

UMSAGNIR
"Þetta forrit er algjör snilld. Ég var búin að leita lengi að íslensku forriti sem sonur minn gæti notað til þess að æfa sig að lesa, en hann er lesblindur. Í Orðaflippi geta krakkar leikið sér með heil orð, en ekki einstaka stafi og hljóð en margir sérfræðingar halda því fram að lesblindir þurfi að læra orðmyndirnar (orðið í heild sinni) til þess að geta lesið það, það passar alveg við mína reynslu. Annað sem hentar sérstaklega vel fyrir lesblinda er að það er hægt að breyta gerð og lit á letrinu, bakgrunninum og síðast en ekki síst er hægt að myndskreyta. Svo er Orðaflipp bara svo sniðugt og skemmtilegt. Frábært fyrir alla krakka."
--- Rakel Rún - grunnskólakennari 

UMSAGNIR UM ENSKU ÚTGÁFUNA
Smart Apps For Kids: 4/5 Stars
"Best Writing app for kids" 

iHeart This App
"A great app that provides kids with the tools to create a book or journal."

Fun2Tap: 5/5 Stars
"ingenious way to give kids a little boost in the storytelling direction"

HVERNIG VIRKAR ORÐAFLIPP?
Flipparinn byrjar á því að velja sér eitt eða fleiri orðaþemu til að gefa tóninn. Við það veljast orð af handahófi úr völdum þemum og það er hlutverk notandans að gera eitthvað skemmtilegt við þessi orð. 
Saman geta þessi orð skapað myndir í huganum og gefið notandanum innblástur.
Ef notandinn fékk orðin vélmenni, fótbolti, tröll, fjársjóður, slímugur og sköllóttur þá gæti hann sagt frá sköllóttu vélmenni í fótbolta eða slímugu trölli með fjársjóð. Allt eftir því hvernig orðin tala til hans.
Orðaflippið getur staðið eitt og sér sem ljóð, brandari eða saga eða hægt er að nota það sem innblástur að stærra verki t.d. næstu metsölubók.
En það eru ekki bara orðin sem gera Orðaflipp skemmtilegt. Þú getur breytt litum á orðum, spjöldum og bakgrunni, valið úr fjölda bakgrunnsmynda og skreytt verkið með fjölbreyttum smámyndum. 

INNIHELDUR
• Yfir 5000 orð
• 7 orðaþemu
• Öll orð koma í öllum mögulegum myndum t.d. eru
  o Nafnorð í öllum föllum, eintölu og fleirtölu
  o Sagnorð í öllum tíðum
  o Lýsingarorð í öllum stigum og kynum
• 200 klippimyndir til að skreyta
• Fjöldi bakgrunnsmynda
• Ótakmarkað litaval
• Mikill fjöldi leturgerða
• Hægt að stækka og minnka stök orð
• Hægt að eyða út og bæta við orðum 
• Hægt að bæta við eigin orðum

KENNARA OG NEMENDAAÐGANGUR
Í kennaraaðganginum er að finna verkefnasmið sem má nota til að búa til sérhæfðari verkefni. Kennarinn velur orð úr gagnagrunni til að nota í verkefnið eða setur inn eigin orð t.d. orð sem nemendur eru að vinna með í byrjendalæsi. Hægt er að afrita texta úr öðrum skjölum, t.d. ljóð eða fréttir og verkefnasmiðurinn skiptir textanum niður í stök orð. Kennari skrifar lýsingu á verkefninu og stillir hvaða hópar geta unnið verkefnið. Verkefnið getur t.d. verið að raða orðum upp í réttir röð (ef um er að ræða þekkt ljóð), semja eigið ljóð úr orðunum, mynda setningar eða velja orð sem eru af ákveðnum orðflokkum eða gerðum. Allt eftir aldri, getu og hvað kennari/nemendur vilja gera þá stundina.

Til að komast inn í þessi verkefni þá þarf nemandi að fá aðgangsorð hjá kennaranum. Eftir að hafa skráð sig inn þá sér nemandinn öll verkefnin sem eru tengd þessum aðgangi. Hann velur verkefni og þá opnast það í sama vinnuumhverfi og venjulegt orðaflipp. Þegar verkefninu er lokið þá getur nemandinn sent mynd af því til kennarans með tölvupósti. 
Til að nota þennan hluta Orðaflipps þarf að hafa aðgang að internetinu.

Orðaflipp var styrkt af þróunarsjóði námsgagna.

## Key features

- Random word prompts
- Customizable text and background
- Over 5000 words
- 200+ stickers
- Teacher's mode for custom assignments
- Supports adding custom words


## Frequently asked questions about Orðaflipp

### What is Orðaflipp?

Orðaflipp is an Icelandic creative writing app designed to inspire children's imagination. It provides random word prompts and tools for customization to encourage original storytelling and improve language skills.

### How does Orðaflipp work?

Users select word themes, and the app generates random words. These words serve as inspiration for creating poems, jokes, or stories. Users can also customize the appearance with colors, backgrounds, and stickers.

### What kind of content does Orðaflipp include?

The app features over 5000 words across 7 themes, with nouns, verbs, and adjectives in various forms. It also includes 200+ stickers and numerous background images for decoration.

### Can I add my own words to Orðaflipp?

Yes, Orðaflipp allows users to add their own custom words to the vocabulary, further personalizing the creative process.

### Is Orðaflipp suitable for children with dyslexia?

One user review highlights Orðaflipp's suitability for dyslexic children, noting its focus on whole word recognition and customizable text and background options.

### Does Orðaflipp have ads?

No, Orðaflipp does not contain advertisements.

### What is the price of Orðaflipp?

Orðaflipp is available for a one-time purchase of $4.99.

### What devices does Orðaflipp support?

Orðaflipp is currently supported on iPad devices.

## Version history (last 5 releases)

### 2.1 — 2017-02-23

This app has been updated by Apple to display the Apple Watch app icon.

Uppfærsla á stærri innsláttarsvæðum þannig að þau lagi sig að lyklaborði.
Því ætti innsleginn texti ekki lengur að vera falinn á bakvið lyklaborð.

### 2.0 — 2017-02-14

Uppfært notendaviðmót í kringum bækur og blaðsíður.
Einnig hægt að skoða bækur og búa til pdf sem hægt er að vista td. í iBooks.
Uppfæsla vegna Kennaraðagangs - tenging við nýjan bakenda og Kennaraaðgangur ætti því að byrja að virka með þessari útgáfu.

### 1.2 — 2016-09-06

Samhæfniuppfærsla

### 1.1 — 2015-07-14

Smávægilegar villulagfæringar

### 1.04 — 2014-08-20

Villulagfæringar:
Lagfæring á villu sem olli þvi að orð sem byrja á d eða ð voru ekki aðgengileg í verkefnasmið.
Lagfæring á villu sem olli því að ekki var alltaf hægt að breyta formi orðs.

## Apps similar to Orðaflipp

| App | Rating | Price | Category |
| --- | --- | --- | --- |
| [Lestrarleikurinn](https://appshunter.io/ios/app/lestrarleikurinn/id1229200786) | — | Free | Education |
| [Innipúkinn í umferðinni](https://appshunter.io/ios/app/innipukinn-i-umferinni/id1033539364) | 5.0 (2) | Free | Education |
| [Teddy Bear Math - TIBIRI](https://appshunter.io/ios/app/teddy-bear-math-tibiri/id1366679877) | 5.0 (1) | Free | Education |
| [Moji Klukki Íslenska](https://appshunter.io/ios/app/moji-klukki-islenska/id622523759) | 2.0 (1) | $1.99 | Education |
| [Í Talnalandi](https://appshunter.io/ios/app/i-talnalandi/id1290850362) | — | $2.99 | Education |
| [Teddy Bear Math - Add to 100](https://appshunter.io/ios/app/teddy-bear-math-add-to-100/id1364787967) | 5.0 (2) | Free | Education |

## More apps by Gebo Kano ehf.

- [IKUE](https://appshunter.io/ios/app/ikue/id687085995)
- [Jólasveinadagatalið](https://appshunter.io/ios/app/jolasveinadagatali/id755388950)
- [Word Creativity Kit - Creative writing for kids](https://appshunter.io/ios/app/word-creativity-kit-creative-writing-for-kids/id825981779)
- [Magnetry](https://appshunter.io/ios/app/magnetry/id846619946)
- [Sticker Story -  Free storybook creator for kids](https://appshunter.io/ios/app/sticker-story-free-storybook-creator-for-kids/id925042518)

All apps by Gebo Kano ehf.: https://appshunter.io/developer/447850798

---

*Data collected daily from the US App Store and indexed by [AppsHunter](https://appshunter.io/). User reviews are verbatim App Store reviews. Ratings, prices and chart positions refresh continuously; this snapshot is from 2026-06-24.*
