# Sjónvarpið — Horfa, lesa og leika saman

> Horfa, lesa og leika saman (iPhone/iPad app by Gamall Kall.)

- Source: https://appshunter.io/ios/app/sjonvarpi/id6821685817 (this page in markdown: same URL + `.md`)
- Developer: [Gamall Kall](https://appshunter.io/developer/1790531169)
- Category: Entertainment, Education
- Price: Free
- Age rating: 12+
- Requires: iOS 17.0 · 19 MB
- Languages: Icelandic
- Released: 2026-10-15
- Data updated: 2026-11-06

## What is Sjónvarpið?

Sjónvarpið er Líf í stofunni. Staður fyrir fólk til að horfa, lesa, leika og uppgötva eitthvað saman.

Á bak við Sjónvarpið er Líf, vettvangur fyrir sköpun og samveru. Við viljum gefa skapandi fólki rými til að gera það sem því liggur á hjarta og koma nýjum sögum, hugmyndum og sjónarhornum inn í samfélagið. Hér tengjast líf.is, Myndarsögur og vefir mis.is á einum skjá.

RÁS SEM VIÐ HORFUM Á SAMAN
Sjónvarpið hefur sameiginlega dagskrá. Kveiktu og komdu inn í það sem er í loftinu: myndbönd, tónlist, samtöl og annað efni. Sjáðu hvað er næst eða opnaðu dagskrána með fjarstýringunni. Í FaceTime er hægt að horfa saman með SharePlay.

LEIKIR FYRIR FÓLKIÐ Í SÓFANUM
Veljið hver er heima og gefið dýrunum í sófanum nöfn. Fjarstýringin gengur á milli í quis?, svörin birtast þegar allir hafa svarað og topp5 telur niður frá fimmta sæti. Teiknið saman á blað eftir hugmynd dagsins eða prófið teikniæfingu með rólegri klukku.

Í leikjasalnum má spila Öldugang í Rækjuvík beint á sjónvarpinu. Aðrir leikir vísa með QR-kóða í símann.

MYNDASÖGUR Á STÓRA SKJÁNUM
Opnið rit Myndarsagna og lesið saman, upphátt eða í hljóði, eina síðu í einu. Appið man hvar þið hættuð og getur flett sjálft. Þar sem framhaldið er á vefnum birtist QR-kóði að lesaranum.

VEGGUR SEM VERÐUR AÐ LIFANDI MÁLVERKI
Skoðið list, plaköt og myndasögur af veggnum. Opnið myndasýningu eða leyfið verkinu að taka við skjánum þegar fjarstýringin fær að hvíla.

LÍF Í STOFUNNI
Á heimaskjánum mætast dagskráin, verk af veggnum, myndasögur og leikir. Um helgar bætast við helgarleikur og helgarlisti. Frá kvöldi til morguns dimmir viðmótið svo skjárinn lýsi síður upp stofuna.

Appið er á íslensku, ókeypis og án innskráningar. Nettenging er nauðsynleg fyrir dagskrá og efni. Sófanöfn, lesstaða og stillingar eru vistuð á Apple TV-tækinu. Hægt er að tilkynna og fela notendaefni í appinu.

Sjónvarpið frá Líf. Gerum það saman.

Hlaðni veggurinn færir samtölin í stofuna. Veldu þátt, hlustaðu frá upphafi og lestu með þar sem texti hefur verið birtur. Sýningartímar koma úr birtri vikudagskrá Sjónvarpsins. Sjálfvirk umritun er merkt sérstaklega.

Kynnstu fólkinu á bak við verkin. Farðu úr samtali á höfundasíðu, skoðaðu verk og skannaðu kóða til að lesa áfram í símanum. Birtir kaflar fá nákvæmar tilvísanir; höfundar, einstakar sögur og safnrit eru aðgreind.

## Is Sjónvarpið safe?

Not enough ratings yet to assess Sjónvarpið.

## Is Sjónvarpið legit?

Sjónvarpið appears legitimate, with a few gaps. The AppsHunter Legitimacy Score for Sjónvarpið is 65 out of 100 points across 7 verification signals from App Store and developer data.


## Version history (last 5 releases)

### 1.3.1 — 2026-11-01

Veðrið á landinu.

• Veðurskjáir Sjónvarpsins sýna nú spá Veðurstofu Íslands fyrir átta staði, með veðurtáknum líf.is, hita og vindi. Spáin endurnýjast á tíu mínútna fresti.
• Nýjasta Líf-letrið, með betra bili á eftir ð og íslenskum gæsalöppum.

### 1.3 — 2026-10-30

Stofan á hreyfingu, vikudagskrá, samtöl og fólkið á bak við verkin.

• Efsta hillan á heimaskjánum er orðin hringekja: kúlur vefjanna svífa um sófann og þú sérð hvað er í beinni á Sjónvarpinu.
• Merkið er komið á pappír eins og öll merki líf.is.
• Flettu birtri dagskrá næstu sjö daga.
• Hlustaðu á þætti af Hlaðna veggnum frá upphafi. Birtur texti fylgir kyrrmynd, og sýningartímar tengja samtölin við Sjónvarpið.
• Opnaðu höfundasíður og verk með nákvæmum tilvísunum. Grettis saga Bjarna Pálssonar opnast á réttri síðu í Myndarsögum á ferð.

### 1.2 — 2026-10-29

Appið heitir nú Sjónvarpið og hefur fengið sjónvarpsmerkið okkar sem apptákn.

Líf í stofunni heldur áfram: sameiginleg dagskrá, myndasögur, list og leikir fyrir fólkið í sófanum. Verslunarlýsingin er nú á íslensku og kynnir betur tengslin við Líf, Myndarsögur og skapandi samfélagið.

Merki og heiti eru nú einn sjónvarpshnappur. Útsendingin birtist í merkinu þegar stóra sjónvarpið fer úr sýn.

### 1.1 — 2026-10-17

- The game room: play Öldugangur í Rækjuvík directly on the TV, with a clear Play Here button and remote controls. Other games have QR codes to play on your phone.
- A weekend row with the new weekend quiz and top-5 list.
- Tonight's horoscope for everyone on the sofa, side by side.
- Drawing practice: 320 exercises with a calm timer.
- Top Shelf shows what's on Sjónvarpið now, today's games and the comics you are reading.
- Sjónvarpið in Control Center, and SharePlay to watch together on FaceTime.
- Sounds in the games, a real slideshow on the wall, and many small fixes.

### 1.0 — 2026-10-15

No release notes.

## More apps by Gamall Kall

- [Myndarsögur](https://appshunter.io/ios/app/myndarsogur/id6740549070)
- [Líf](https://appshunter.io/ios/app/lif/id6821725905)
- [Líf mý/bý](https://appshunter.io/ios/app/lif-myby/id6822529747)

All apps by Gamall Kall: https://appshunter.io/developer/1790531169

---

*Data collected daily from the US App Store and indexed by [AppsHunter](https://appshunter.io/). User reviews are verbatim App Store reviews. Ratings, prices and chart positions refresh continuously; this snapshot is from 2026-11-06.*
