Lélegt
Lélegt app mætti vera meira í boði frá rúv lélegt sjónvarpAirplay
I have tried everything to airplay the contents from this app to my apple tv and my music home theater but it does not work - while my other iphone music apps do this easily and without a glitch. It is a shame that RUV is still being a dinosaur at this and I therefore have to rate this app in the bottom range...Developer Response
Sæll Vikbenni123, ertu til í að sjá hvort þetta sé betra eftir seinustu uppfærslu í appinu?Virkar ágætlega, nema podcastþættir
Ég nota þetta fyrir podcastþætti og mér finnst þetta dugar ágætlega í að merkja uppáhaldsþætti, flakka aftur í eldri þætti, eða sjá hvað var á dagatalinu í dag.
Hinsvegar þegar maður ýtir á back/forward takkana á símanum / bluetooth heyrnartól, það skoppar ekki 15 eða 30 sek heldur fer í allt annan þátt. Án þess að geta skoppað býður appið ekki upp á miklu meira virkni en gamladags útvarpið.Vantar texta við íslenskt efni
Nú er biðin eftir texta á íslensku efni bæði hér og í Apple TV orðin ansi löng. Hvenær eiga þeir sem reiða sig á texta, og greiða jafn mikið í útvarpsgjald og heyrandi fólk þrátt fyrir að geta ekki heyrt í því, að geta notið sjónvarpsins til jafna við aðra?Developer Response
Takk fyrir umsögnina og að vekja athygli á þessu máli. Vegna takmarkana á núverandi þjónustu sem dreifir efninu höfum við ekki getað komið inn textum á efnið á því formi sem Apple tækin krefjast. Við erum í stórum kerfisbreytingum og erum að innleiða annað kerfi sem leysir öll þessi vandamál. Ef allt gengur að óskum ætti þessari innleiðingu að vera lokið eftir 3 mánuði. Við látum þig vita hér þegar við leysum úr þessu vandamáli.Mikið af böggum
Loksins þegar gamla appið var orðið gott, þà kemur þetta afar gallaða eintak í staðinn. Léleg skipting milli wifi og mobile. Missir samband við wifi oft. Ekki gott!Developer Response
Takk fyrir umsögnina. Mætti ég spyrja hvort þetta sé ennþá vandamál í núverandi útgáfu? Ef svo er endilega hafðu samband við okkur á hugbunadardeild@ruv.is.Fínt app, en vantar bookmark fídus
Væri alveg frábært að geta bookmarkað þætti eða seríur í appinu.Developer Response
Tók aðeins lengur en við áætluðum en nú getur þú bookmarkað þætti :)Hvenær kemur chrome cast support?
Þetta er að verða ansi löng bið.Developer Response
Sæll Thorir_Kr, Það er alveg satt hjá þér, en biðin er loksins á enda :)Fínt en vantar texta
Væri fínt að hafa texta á gömlum fréttatímum í appinu líkt og í beinni útsendingu :)Developer Response
Sæll Potter fan #1, Það er í vinnslu hjá okkur að koma því í gagnið :)Fínt app en vantar chromecast
Gott app en það vantar Chromecast stuðning. Get ekki kastað þessu í sjónvarpið sem gerir appið gagnslaust fyrir mig því miður.Developer Response
Sæll chandlerbing15667, Í nýjustu útgáfu erum við loksins komin með Chromecast stuðning :)