Live Reviews:
Sögusteinninn leikjabók

Sögusteinninn leikjabók

Þjóðhættir í hulduheimum

⭐️5 / 5
Rating
🙌1
Ratings
📼0 sc
Content
📦w/o updates
Updates frequency
🗣❌ unsupported
Your locale

All Versions of Sögusteinninn leikjabók

1.0

August 23, 2019

Price History of Sögusteinninn leikjabók

Description of Sögusteinninn leikjabók

Sögusteinninn er frábær viðbót á íslenskum bóka- og smáforritamarkaði. Um er að ræða spennandi, fróðlega og gagnvirka leikjabók og hljóðbók fyrir krakka á aldrinum 6-10 ára. Lekjabókin var styrkt af eftirtöldum aðilum: • Menningarstyrkur tengdur nafni Jóhannesar Nordal • Þróunarsjóður námsgagna Leikjabókin skiptist í 11 myndskreytta kafla sem í senn er hægt að lesa og hlusta á. Í hverjum kafla er leikjaþraut tengd sögunni sem gerir lesanda kleift að vera þátttakandi í söguþræðinum. Auk þess að vera kjörið lesefni fyrir börn veitir leikjabókin innsýn í íslenskan þjóðmenningararf. Sagan fjallar um krakkana Helenu og Unnar sem búa yfir yfirnáttúrulegum hæfileikum. Þegar álfurinn Gjúki þarfnast aðstoðar þeirra dragast þau inn í Hulduheim og lenda í æsispennandi ævintýrum. Vættirnar í Hulduheimi lifa eins og Íslendingar gerðu fyrr á öldum. Í gegnum söguna kynnist lesandi því bæði þjóðsagnaarfinum og lifnaðarháttum Íslendinga áður fyrr Sögusteinninn er hörkupspennandi og skemmtileg saga sem má lesa sér til afþreyingar en hún nýtist einnig í skólastarfi fyrir nemendur í 3. – 5. bekk. Efni bókarinnar tengist eftirfarandi hæfniviðmiðum úr aðalnámskrá Grunnskóla. Að nemendur geti: Íslenska • nýtt sér og endursagt efni á rafrænu formi, • valið sér lesefni eftir áhuga og þörf og lesið sögur, ljóð og fræðandi efni, sem hæfir lestrargetu, sér til ánægju og skilnings, • lesið ævintýri, sögur og ljóð ætluð börnum, • aflað sér upplýsinga úr ýmsum tiltækum gagnabrunnum, svo sem bókum og á rafrænu formi, • valið bók eða annað lesefni og lesið sér til ánægju. Samfélagsfræði • bent á tengsl valinna þátta í samfélagi, náttúru, trú og lífsviðhorfi, einkum í nærsamfélaginu, • nefnt dæmi um einkenni og stöðu Íslands í heiminum í ljósi legu, sögu og menningar, • sagt frá einkennum og sögu heimabyggðar og tengslum við önnur svæði á Íslandi, • aflað sér og nýtt vitneskju um samfélagsmálefni í námsgögnum og miðlum. • rætt um samfélagið og notað valin hugtök í því samhengi, • bent á dæmi um áhrif tækni og framkvæmda á mannlíf og umhverfi, • komið auga á nokkra þætti sem hafa haft áhrif á mannlífið í tímans rás, svo sem umhverfi og skipulag samfélaga, • sagt frá gerð og mótun íslensks samfélags fyrr og nú, • bent á dæmi um hvernig sagan birtist í munum og minningum, Upplýsingatækni • nýtt rafrænt og gagnvirkt námsefni, Textílmennt • sagt frá íslensku hráefni og unnið með það á einfaldan hátt, Heimilisfræði • tjáð sig á einfaldan hátt um jákvæð samskipti við borðhald, helstu hátíðir Íslendinga, siði sem þeim fylgja og þjóðlegan mat. Í kennsluleiðbeiningum er að finna hugmyndir að umræðuefni og verkefnahugmyndir til að nota með efni bókarinnar. Þau verkefni tengjast mörg fleiri hæfniviðmiðum sem eru talin upp í kennsluleiðbeiningunum. Kennsluleiðbeiningarnar er að finna á eftirfarandi slóð: http://gebokano.com/Sogusteinninn/TilKennara.pdf
Show less

Sögusteinninn leikjabók: FAQ

Is Sögusteinninn leikjabók iPad-friendly?

Yes, there is an iPad version available for Sögusteinninn leikjabók.
The Sögusteinninn leikjabók app was made by Gebo Kano ehf..
The Sögusteinninn leikjabók app currently supports iOS 12.1 or later.
5.0 out of 5 is the fantastic rating that Sögusteinninn leikjabók has received from users.
The App Category Of Sögusteinninn Leikjabók Is Education.
1.0 is the most recent version of the Sögusteinninn leikjabók app.
Sögusteinninn leikjabók updated on July 8, 2024.
The specific date when the app came out was February 5, 2023.
No objectionable content, suitable for young children.
Currently, Sögusteinninn leikjabók supports American English.
No, Sögusteinninn leikjabók is not on Apple Arcade.
No, Sögusteinninn leikjabók does not support in-app purchases.
Sorry, Sögusteinninn leikjabók is not designed for integration with Apple Vision Pro.

Screenshot of Sögusteinninn leikjabók

ipad

More Applications by Gebo Kano ehf.

Alternatives to Sögusteinninn leikjabók