Mjög fínt en ökuskírteini kemur alltaf útrunnið
Ég sé á lista yfir skírteini hvenær það var síðast uppfært, opna ökuskírteinið og sama tímasetning birtist þar lika. Ég ýti á Add to Apple Wallet og passinn sem birtist hefur strikamerki þar sem stendur "Í gildi - 18.03.2023 13:13:05" sem er nákvæmlega klukkan núna. Um leið og passinn er kominn inn í Wallet þá verður hann expired og hverfur.
Ég verð þá að finna ökuskírteinið í expired passes og velja unhide.
Ekki góð tilfinning að hafa útrunnið ökuskírteini þegar maður er bara með simann á sér.
Vonandi sér einhver þetta sem getur látið laga það.