Free
Rating summary
About
3stig er langbesta appið fyrir íslenskan körfubolta. Allar fréttir, allir leikir, staðan í deildunum og tölfræði tímabilsins – á einum stað, á íslensku.
LEIKIR Í BEINNI
Stigin, leikhlutinn og klukkan uppfærast á meðan leikurinn stendur yfir. Opnaðu leikinn og sjáðu stigatöflu eftir leikhlutum, leikmannatölfræði beggja liða, samanburð liðanna og atburðarásina – stig fyrir stig.
ÞITT LIÐ
Veldu liðin sem þú heldur með. Þá færðu push-tilkynningu á leikdegi, tilkynningu þegar leikurinn er að hefjast og lokatölurnar þegar honum lýkur. Fréttir af þínu liði safnast saman á einum stað og næstu leikir eru alltaf við höndina. Þú ræður sjálf(ur) hvaða tilkynningar þú færð.
FRÉTTIR FRÁ ÖLLUM HELSTU MIÐLUM
Körfuboltafréttir frá mbl.is, RÚV, KKÍ og Körfunni í einum straumi, merktar eftir uppruna. Lestu fyrirsögnina og opnaðu fréttina hjá útgefanda.
STAÐAN OG TÖLFRÆÐI
Stöðutöflur Bónus deildar karla og kvenna og 1. deildar karla og kvenna, með úrslitakeppnislínu. Tölfræðihornið sýnir stigahæstu leikmenn, fráköst, stoðsendingar, skotnýtingu og fleira yfir tímabilið – meðaltal eða samtals, deildarkeppni eða úrslitakeppni.
ALLT TÍMABILIÐ
Leikjaplanið liggur fyrir alla leiktíðina. Flettu fram og til baka í dagatalinu, sjáðu úrslit síðustu daga og hvenær þitt lið spilar næst. Ef leik er frestað eða hann færður sérðu það í appinu.
HLAÐVÖRP
Körfuboltahlaðvörpin spilast beint í appinu með svefntíma, hraðastillingu og minni um hvar þú varst.
Appið er frítt. Auglýsingar eru merktar og aldrei fleiri en ein á hverjum skjá. Gögn um leiki koma frá Körfuknattleikssambandi Íslands.
Show more
+1
What's New in 3stig
1.2.1
October 31, 2026
- Endurhönnuð síða hvers liðs og Mitt lið: Yfirlit, Leikir og Leikmenn - Dagsetning á hverjum leik - Stórar tölur (100+) passa betur í "skorkortin" - Ýmsar lagfæringar
More






