Dulur krakkar

Dulur krakkar

íslenskir leikir fyrir börn

0 ratings
Free

Rating summary

Details

  • Released
  • Updated
  • August 13, 2026
  • September 23, 2026

Features

Dulur krakkar screenshot #1 for iPhone
Dulur krakkar screenshot #2 for iPhone
Dulur krakkar screenshot #3 for iPhone
Dulur krakkar screenshot #4 for iPhone
Dulur krakkar screenshot #5 for iPhone
iphone
ipad
🖼️Get Icon
Icons↘︎

About

Dulur Krakkar er safn 64 leikja fyrir börn frá leikskólaaldri og upp á unglingsár. Leikirnir eru fyrst og fremst skemmtilegir, og í leiðinni æfa börnin lestur, stafsetningu, stærðfræði, rökhugsun og fjármálalæsi. LEIKIR FYRIR ÖLL ALDURSSTIG • Leikskóli (3–5 ára): dýr, litir og form, talning, skuggaleikur, stærra eða minna og formaþrautir • Yngsta stig (6–8 ára): stafir og orð, rím, atkvæði, lestrarsögur, samlagning og frádráttur, mynstur og rökþrautir • Miðstig (9–12 ára): klukkan, margföldun, brot, fánar, heimsálfur, sólkerfið, málfræði, stafsetning og forritun • Lífsleikni (10–15 ára): laun og launaseðlar, skattar, sparnaður, lán og vextir, fyrsta íbúðin, neytendaréttur, netsvindl, skyndihjálp og tilfinningar NÝTT: BEKKIR OG KENNARAR Kennari býr til bekk og gefur nemendum kóða. Nemendur ganga í bekkinn með kóðanum, velja sér gælunafn og dýr og safna stjörnum fyrir bekkinn, hvort sem þau spila í appinu eða á vefnum. Í Keppnisstund keppir allur bekkurinn saman í spurningakeppni í rauntíma. Kennarar skrá sig inn í appinu og hafa aðgang að öllu kennarasvæðinu: yfirliti yfir bekkinn, stigatöflu og liðum, Fjörkassanum, sýningarham fyrir skjávarpa, Keppnisstund og Leikjasmiðjunni, þar sem kennarar búa til eigin leiki úr námsefninu. ÖRUGGT FYRIR BÖRN • Engar auglýsingar og engin kaup í forriti • Börn þurfa hvorki netfang né lykilorð • Í bekk nota börn gælunafn og þurfa ekki að gefa upp raunverulegt nafn • Stillingar, innskráning kennara og allir tenglar út úr appinu eru á bak við spurningu fyrir fullorðna Appið er í boði á íslensku, ensku, dönsku, norsku og sænsku. Persónuvernd: https://www.dulur.is/krakkar/personuvernd
Show more

What's New in Dulur krakkar

1.2.0

September 23, 2026

Stærsta uppfærslan hingað til! • Appið er nú á fimm tungumálum: íslensku, ensku, dönsku, norsku og sænsku • Bekkir: nemendur ganga í bekk með kóða frá kennaranum og spila í appinu eða á vefnum • Keppnisstund: spurningakeppni í rauntíma fyrir allan bekkinn • Kennarasvæði: kennarar skrá sig inn og stjórna bekkjunum sínum beint í appinu • 64 leikir, þar af 25 nýir

More

Developer apps