ee

ee

edrú & einlægni

0 ratings
Free

Rating summary

Details

Released
June 24, 2026
Updated
October 10, 2026

Features

ee screenshot #1 for iPhone
ee screenshot #2 for iPhone
ee screenshot #3 for iPhone
ee screenshot #4 for iPhone
ee screenshot #5 for iPhone
ee screenshot #6 for iPhone
🖼️Get Icon
Icons↘︎

About

ee er rólegt, nafnlaust fylgdarforrit fyrir alla sem ganga bataveginn — hvort sem þú ert nýbyrjuð eða nýbyrjaður eða áratuga edrú. Á íslensku, dönsku og ensku. Enginn reikningur. Engin rakning. Engin gögn yfirgefa símann þinn. FUNDIR Allir AA-fundir á Íslandi og í Danmörku á einum stað — opnir, lokaðir og fjarfundir. Leitaðu eftir stað, degi eða tegund, sjáðu hvaða fundur er næstur og finndu fundi nálægt þér. Fundalistinn er geymdur í símanum og virkar án nettengingar. EDRÚTELJARI Hve lengi þú hefur haldið — sem staðreynd, ekki keppni. Áfangar minnast á hljóðlátan hátt og daglegt loforð: „Ég lofa að vera edrú í dag." Líka sem græja á heimaskjánum. HJÁLP MEÐ EINU TAKI Hjálparsímar og neyðarnúmer landsins sem þú velur eru alltaf innan seilingar, líka án nets. Trúnaðarmaðurinn þinn er einu taki frá. FYRIR DAGINN • Hugsun dagsins úr sex flokkum — æðruleysi, Biblían, hvatning, spaug, heimspeki og náttúra — og stutt hugleiðing dagsins • Lífshjólið: vikulegar spurningar um hvernig þér líður á ólíkum sviðum lífsins • Dagsplan: fastir liðir vikunnar sem þú hakar við • Dagbók sem fer aldrei úr tækinu • Yfirlit yfir fundina sem þú hefur sótt • Leiðbeiningar fyrir nýliða og lengra komna — fundir, trúnaðarmenn, sporin, æðruleysisbænin og hvað gerist ef bakslag verður • Mildar áminningar, aðeins ef þú vilt GÖGNIN ÞÍN ERU ÞÍN Engin innskráning, enginn reikningur, engin rakning og engar auglýsingar. Allt sem þú skrifar verður eftir í símanum. Ef þú vilt afrit fer það í þitt eigið iCloud — aldrei í gegnum netþjóna okkar. ee er sjálfstætt fylgdarforrit og er ekki á vegum AA-samtakanna. Það kemur ekki í stað funda, sporavinnu eða trúnaðarmanns. Persónuvernd: https://eeapp.is/privacy
Show more

What's New in ee

1.1.17

October 10, 2026

• ee er nú líka á dönsku — með fundum, hjálparsímum og leiðbeiningum í Danmörku • Veldu tungumál (íslenska, danska eða enska) og land strax í upphafi, eða síðar undir Stillingar › Land og tungumál • „Fundir nálægt þér" velur landið sjálfkrafa eftir því hvar þú ert • Fundalistinn birtist strax, líka án nettengingar • Nýjar og yfirfarnar leiðbeiningar undir Tæknileg hjálp • Nýr styrkur í App Store — styrkir eru valfrjálsir og opna enga eiginleika • Ýmsar lagfæringar

More