
Gjafalisti
Einn listi. Allar verslanir.
0 ratings
Free
Rating summary
About
Gjafalisti er gjafalistinn sem nær yfir allar verslanir. Safnið óskum úr Epal, ELKO, Líf og list, Kokku, IKEA og hvaðan sem er á einn fallegan lista – og deilið honum með einum hlekk.
FYRIR BRÚÐKAUP, FERMINGAR, JÓL OG AFMÆLI
• Bætið við vöru úr hvaða vefverslun sem er: límið hlekk og við sækjum nafn, mynd og verð.
• Deilið beint úr Safari eða appi verslunar á Gjafalista.
• Skannið strikamerki í búðinni eða takið mynd af vörunni.
• Vantar hugmyndir? Yfir 300 gjafahugmyndir úr íslenskum verslunum, síðar eftir tilefni, aldri og verði. Einn smellur og gjöfin er komin á listann.
• Veljið fjölda – átta glös, sex diskar – og merkið það sem ykkur langar mest í.
EINFALT FYRIR GESTI
• Gestir opna hlekkinn, velja gjöf og skrifa nafnið sitt. Enginn aðgangur, ekkert app.
• Aðrir gestir sjá strax hvað er frátekið, svo enginn kaupir það sama tvisvar.
• Þið sjáið hversu margt er frátekið – en aldrei hvað, og aldrei hver. Gjafirnar koma á óvart.
YKKAR LISTI, YKKAR STÍLL
• Útlit fyrir hvert tilefni: látlaust og glæsilegt fyrir brúðkaupið, litríkt fyrir sex ára afmælið.
• QR-kóði fyrir boðskortið og hlekkur sem lítur vel út í Messenger og SMS.
• Reikningsupplýsingar fyrir þau sem vilja heldur gefa pening.
• Læsið listanum með lykilorði ef þið viljið.
• Bjóðið makanum eða foreldri að sjá um listann með ykkur.
Gjafalisti er ókeypis og á íslensku, ensku og pólsku.
— — —
IN ENGLISH
Gjafalisti is a gift registry for Iceland that covers every shop. Collect wishes from any online shop onto one list and share it with a single link or a QR code on the invitation.
• Add products by pasting a link, sharing from Safari, scanning a barcode in a shop, or taking a photo.
• Guests reserve a gift in seconds without an account or an app, and see what others have already reserved.
• You see how much is reserved, never what or by whom, so the gifts stay a surprise.
• More than 300 gift ideas from Icelandic shops, filtered by occasion, age and price, added in one tap.
• Looks for every occasion, from an elegant wedding list to a child's birthday.
• Free, in Icelandic, English and Polish.
Show more
What's New in Gjafalisti
1.1
October 5, 2026






