Í Talnalandi

Í Talnalandi

Leikskólastærðfræði

0 ratings

Archived App

This is an archived listing of the app previously available on the App Store.

Although the app is no longer distributed by Apple, you can still view its description, screenshots, version history, ratings, and metadata for reference.
Rating summary

Details

  • Released
  • Updated
Í Talnalandi screenshot #1 for iPhone
iphone
ipad
🖼️Get Icon
Icons↘︎

About

Í leiknum AFMÆLI Í TALNALANDI er áhersla lögð á hugtaka- og talnaskilning. Jafnframt er lagður grunnur að talnaskráningu (1-9), talnalæsi og unnið með form. Öll fyrirmæli eru lesin. Í leiknum eru átta verkefni sem börnin þurfa að leysa til þess að koma aðalpersónunni, Palla páfagauk í afmæli vinkonu sinnar. Verkefnin birtast eitt af öðru þegar leikurinn er spilaður í heild en einnig er hægt að velja tiltekin verkefni beint frá yfirlitsmyndinni með því að smella á þau. Verkefnin eru merkt A-E og auk þess eru þrjú talnaskriftarverkefni við götuvita. Verkefni A – hugtakaskilningur (langur – stuttur) Þrjú viðfangsefni þar sem fígúrum er raðað á palla eftir lengd. Í lokin er smellt á ör til þess að halda áfram. Verkefni B – jafn margir og talning Hér eru átta viðfangsefni þar sem para á saman jafn marga. Fyrir hvert rétt verkefni birtist draugur í súlu til hliðar. Eftir tvær rangar tilraunir birtist nýtt viðfangsefni. Í lokin er sagt hvað tókst að leysa mörg verkefni rétt. Smellt er á ör til þess að halda áfram. Verkefni C – form Verkefnið byggist á að draga rétt form í réttri stærð á réttan stað. Verkefni D – tölustafur og fjöldi Hér á að para saman tölustaf og fjölda. Draugum er safnað fyrir hvert rétt verkefni. Verkefni E – flokkun, súlurit og talning Flokka á blöðrur eftir litum inn í súlur. Það er gert með því að draga þær á réttan stað en fjöldi blaðra í hverri súlu birtist efst. Hér eru viðfangsefnin sex og að þeim loknum þarf að smella á örina til að komst á leiðarenda, í afmæli Pálu. Talnaskrift við götuvita Við hvern götuvita á að skrifa þrjá tölustafi (1-3, 4-6 og 7-9). Í hverjum tölustaf er ör sem sýnir hvar á að byrja að draga til stafs.
Show more

What's New in Í Talnalandi

1.02

November 30, 2017

This app has been updated by Apple to display the Apple Watch app icon. Minor bugfixes

More