Free
In-App Purchases
About
Íslenskar Krossgátur er safn daglegra þrauta á íslensku: krossgátur, Orðla, Súdóku, Stafarugl og spil. Allt samið fyrir íslenska spilara, í rólegu og fallegu umhverfi sem minnir á krossgátusíðuna í blaðinu.
Uppbyggilegur skjátími.
KROSSGÁTUR
• Ný íslensk krossgáta á hverjum degi
• Vísbendingarnar eru skrifaðar af fólki, ekki vél, og sumar eru myndir
• Vikuyfirlit og safn eldri gátna til að leysa þegar þér hentar
• Framvindan vistast, líka án nettengingar
LEIKIR
• Orðla: finndu orð dagsins í sex tilraunum
• Súdóku: ný þraut daglega, auðveld, miðlungs eða erfið eftir vikudegi
• Stafarugl: finndu falin orð í stafaborðinu með hjálp vísbendinga
• Dagatal fyrir hvern leik, svo þú getur spilað daga sem þú misstir af
SPIL
• Manni, Kani og Brids, gömlu góðu íslensku spilin
• Spilaðu við aðra eða við tölvuna
• Búðu til herbergi og bjóddu vinum þínum að borðinu
• Vikuleg spilamót
VINIR OG SAFNIÐ
• Bættu við vinum og sjáðu hvernig þeim gekk í dag
• Safnaðu afrekum, römmum og borðum eftir því sem þú spilar
• Þú hækkar um stig með hverri leystri þraut
FYRIR HVERN?
Fyrir alla sem hafa gaman af orðum og þrautum á íslensku, hvort sem þú leysir krossgátuna í blaðinu á hverjum morgni eða vilt bara skerpa á hugann í nokkrar mínútur á dag. Gott fyrir orðaforðann og góð hvíld frá áreiti.
ENGAR AUGLÝSINGAR
Engar auglýsingar og engin truflun. Bara þú og þrautin.
ÁSKRIFT
Áskrift opnar allar eldri gátur og ótakmörkuð spil. Hún er mánaðaráskrift í gegnum App Store, gjaldfærð á Apple-aðganginn þinn, og endurnýjast sjálfkrafa nema henni sé sagt upp a.m.k. sólarhring áður en tímabilinu lýkur. Þú segir upp í Stillingum tækisins → Apple-aðgangurinn þinn → Áskriftir.
Notkunarskilmálar (EULA): https://www.apple.com/legal/internet-services/itunes/dev/stdeula/
Skilmálar ÍKG: https://ikg.is/skilmalar
Persónuverndarstefna: https://ikg.is/personuvernd
Show more
+1
What's New in Íslenskar Krossgátur
1.1
November 11, 2026
Nú geturðu gerst áskrifandi beint í appinu í gegnum App Store: tannhjólið efst til hægri → Áskrift. Áskrift opnar allar eldri gátur og ótakmörkuð spil. Auk þess smærri lagfæringar.
More1
Subscriptions & In-App Purchases
Áskrift
Allar gátur, safnið og ótakmörkuð spil.
$6.991 Month








