Ég hafði samband við þjónustuver Vodafone og þjónustuverið tengdi símanúmerið við kennitöluna mína. Forritið er farið að virka eins og til er ætlast, og ég verð að segja, það virkar vel! Fæ upplýsingar um símtöl, gagnamagn, vinanúmer og get bæði pantað símtal og haft samband við þjónustuver Vodafone, allt úr forritinu.
Eldri umsögn (1. des 2011):
Fyrirtækið sem ég vinn hjá flutti GSM áskriftirnar til Vodafone nýlega. Ég sótti appið og hugsaði mér gott til glóðarinnar að fylgjast með gagnamagni og notkun. Ég kemst inn í forritið en allar þjónustur í því eru óvirkar með skilaboðunum; "Ekki tókst að sækja upplýsingar um þjónustu. Vinsamlegast lokaðu forritinu og skráði þig aftur inn". Meira að segja dagskrár merkið gefur þessi skilaboð.
Þegar/ef Vodafone lagar þessar villur endurskoða ég umsögnina.
Show less