Jólin

Jólin

Íslenska jólaappið

0 ratings
Free

Rating summary

Details

Released
November 6, 2026
Updated
November 6, 2026
Jólin screenshot #1 for iPhone
Jólin screenshot #2 for iPhone
Jólin screenshot #3 for iPhone
Jólin screenshot #4 for iPhone
Jólin screenshot #5 for iPhone
Jólin screenshot #6 for iPhone
Jólin screenshot #7 for iPhone
Jólin screenshot #8 for iPhone
🖼️Get Icon
Icons↘︎

About

Jólin er íslenskt app sem hjálpar þér að halda utan um jólaundirbúninginn á einfaldan og þægilegan hátt. Hvort sem þú ert að skipuleggja jólagjafirnar, undirbúa jólamatinn eða fylgjast með jólasveinunum getur þú haft allt á einum stað. JÓLAGJAFIR OG GJAFAHUGMYNDIR Skráðu jólagjafir og hugmyndir fyrir fjölskyldu og vini. Fylgstu með hvað er búið að kaupa og pakka inn, haltu utan um kostnaðinn og skoðaðu gjafir frá fyrri árum. Þú getur líka skráð fatastærðir og skóstærðir hjá hverjum viðtakanda. JÓLAMATUR OG INNKAUP Skipuleggðu jólamatseðilinn, geymdu uppskriftir og haltu utan um innkaupalistann. Merktu við vörurnar eftir því sem þú verslar. JÓLASVEINARNIR OG SKÓGJAFIR Fylgstu með íslensku jólasveinunum þrettán, sjáðu hvenær þeir koma til byggða og skipuleggðu skógjafirnar. Þú getur líka stillt áminningar svo skórinn gleymist ekki í glugganum. JÓLAKORT OG JÓLAVERKEFNI Haltu utan um send og móttekin jólakort, skráðu það sem þarf að gera fyrir jólin og merktu við verkefnin eftir því sem þeim lýkur. JÓLATRÉÐ OKKAR Geymdu myndir af jólatrénu frá ári til árs og rifjaðu upp jólin. JÓLADAGATAL OG FLEIRA SKEMMTILEGT Opnaðu nýjan glugga í Jóladagatalinu á hverjum degi í desember og taktu þátt í 24 litlum jólaáskorunum. Fylgstu með niðurtalningunni til jóla, taktu þátt í spurningu dagsins og prófaðu jólabingó. Jólin er ókeypis og engin skráning er nauðsynleg. Þú getur byrjað að nota appið strax.
Show more
+1

What's New in Jólin

1.0

November 6, 2026