Líf

Líf

Forsíða internetsins

0 ratings
Free

Rating summary

Details

Released
October 31, 2026
Updated
November 3, 2026

Features

Líf screenshot #1 for iPhone
Líf screenshot #2 for iPhone
Líf screenshot #3 for iPhone
Líf screenshot #4 for iPhone
Líf screenshot #5 for iPhone
Líf screenshot #6 for iPhone
Líf screenshot #7 for iPhone
iphone
ipad
🖼️Get Icon
Icons↘︎

About

Líf er forsíða internetsins í símanum: teikniverkfæri, leikir, lestur og fróðleikur í einum heimi, allt á íslensku. KÚLURNAR OG DAGLEGT Vefirnir svífa sem kúlur á forsíðunni og nýir koma að á hverjum degi. Daglegt býður upp á pör af spjöldum: spurningu dagsins, topp5, orð dagsins, himininn í kvöld, verk dagsins af veggnum og Lífdagatal með því sem er á döfinni. Veðrið glóir þegar norðurljósaspáin er há. SKAPAÐU ÞITT EIGIÐ Hannaðu perlumynstur í perlu, klipptu út myndir og raðaðu þeim í klippimyndir í klippi. Verkin geymast í tækinu og þú getur haldið áfram með þau síðar, líka án nettengingar. TÓNLISTARSMIÐJAN Settu saman lag á tímalínu með hljóðfærum, trommum, nótum og eigin upptökum. Veldu tónstiga, raðaðu bútum og fluttu lagið út sem WAV, MIDI eða verkefni sem má halda áfram með. LESTU OG KANNAÐU Lestu myndasögur í lesara sem man hvar þú varst. Spilaðu Fimm um Ísland og finndu fjöll, jökla, ár og sveitarfélög. Smíðaðu frumeindir í Frumeindasmiðjunni, reiknaðu og teiknaðu gröf í reikni og skoðaðu stjörnuhimininn og reikistjörnurnar. Lestu grein dagsins af íslensku Wikipediu, fylgstu með veðri og jarðhræringum og hlustaðu á hlaðvörp í Hlöðunni. LEIKJASALURINN Spilaðu Öldugang í Rækjuvík inni í appinu og fleiri leiki á leikja.líf.is. SJÓNVARPIÐ Í VASANUM Horfðu á beina útsendingu í litlu sjónvarpi sem þú getur fært til og stækkað á meðan þú skoðar appið, eða snúðu símanum og horfðu á allan skjáinn. ÞITT SAFN Þú getur notað appið án aðgangs. Með Líf auðkenni fylgja verkin, staðurinn í lestrinum og eftirlætin þér á milli apps og vefs. Verkin eru þín og sjást engum nema þú deilir þeim. ÞINN LITUR Veldu appmerki í tíu litum, meðal annars regnboga og norðurljósum, teiknað eða úr gleri. Sumir leikir, vefir og bein útsending þurfa nettengingu. Hlekkir á aðra vefi opnast í glugga inni í Líf. Myndavél, hljóðnemi, staðsetning, prentun og deiling eru aðeins notuð þegar þú velur þær aðgerðir. IN ENGLISH Líf is the front page of the internet on your phone: creative tools, games, reading and learning in one world, in Icelandic. Make bead patterns and collages, compose music on a timeline, read comics, play a map quiz about Iceland, build atoms, calculate and graph, explore the night sky, read Icelandic Wikipedia, check weather and earthquakes, and listen to podcasts. Watch the live channel in a movable mini television. Use it without an account, or connect a Líf identity to keep your work in sync. The interface and most content are in Icelandic.
Show more

What's New in Líf

1.3.0

November 3, 2026

Spíran er komin. • Spíran er nýja merki líf.is og nú líka appmerkið. Gamla orðmerkið er áfram í boði í Mitt líf → Þitt appmerki. • Spíran þín býr efst á Heim. Hún vex af því sem þú gerir í Líf: rætur þegar þú kemur aftur, vatn þegar þú hlustar á Hlöðuna, sól þegar þú leikur þér eða lærir og blóm þegar þú býrð eitthvað til. Hún lifir í veðrinu, fær vini í heimsókn, deyr aldrei og skammar engan. • Ný widget á heimaskjáinn í þremur stærðum. Það stóra spilar Hlöðuna beint, opnar Sjónvarpið og Teikni og flettir spjöldum dagsins. • Spíran á lásskjánum og sem náttljós í StandBy, og tól fyrir Stjórnborð, lásskjá og aðgerðahnappinn. • Límmiðar í Messages: spíran, humlan, mýið, bíllinn með hendur og Sjónvarpið. In English: The sprout is the new logo of líf.is and the app icon. Your own sprout lives at the top of Home, grows with what you do in Líf and lives in the real weather. New home screen widgets in three sizes, lock screen widgets, StandBy, controls for Control Center, the lock screen and the Action button, and a sticker pack for Messages.

More

Developer apps