Sjónvarpið

Sjónvarpið

Horfa, lesa og leika saman

0 ratings
Free

Rating summary

Details

Released
October 15, 2026
Updated
November 1, 2026
Sjónvarpið screenshot #1 for Apple TV
Sjónvarpið screenshot #2 for Apple TV
Sjónvarpið screenshot #3 for Apple TV
Sjónvarpið screenshot #4 for Apple TV
Sjónvarpið screenshot #5 for Apple TV
Sjónvarpið screenshot #6 for Apple TV
Sjónvarpið screenshot #7 for Apple TV
Sjónvarpið screenshot #8 for Apple TV
Sjónvarpið screenshot #9 for Apple TV
Sjónvarpið screenshot #10 for Apple TV
🖼️Get Icon
Icons↘︎

About

Sjónvarpið er Líf í stofunni. Staður fyrir fólk til að horfa, lesa, leika og uppgötva eitthvað saman. Á bak við Sjónvarpið er Líf, vettvangur fyrir sköpun og samveru. Við viljum gefa skapandi fólki rými til að gera það sem því liggur á hjarta og koma nýjum sögum, hugmyndum og sjónarhornum inn í samfélagið. Hér tengjast líf.is, Myndarsögur og vefir mis.is á einum skjá. RÁS SEM VIÐ HORFUM Á SAMAN Sjónvarpið hefur sameiginlega dagskrá. Kveiktu og komdu inn í það sem er í loftinu: myndbönd, tónlist, samtöl og annað efni. Sjáðu hvað er næst eða opnaðu dagskrána með fjarstýringunni. Í FaceTime er hægt að horfa saman með SharePlay. LEIKIR FYRIR FÓLKIÐ Í SÓFANUM Veljið hver er heima og gefið dýrunum í sófanum nöfn. Fjarstýringin gengur á milli í quis?, svörin birtast þegar allir hafa svarað og topp5 telur niður frá fimmta sæti. Teiknið saman á blað eftir hugmynd dagsins eða prófið teikniæfingu með rólegri klukku. Í leikjasalnum má spila Öldugang í Rækjuvík beint á sjónvarpinu. Aðrir leikir vísa með QR-kóða í símann. MYNDASÖGUR Á STÓRA SKJÁNUM Opnið rit Myndarsagna og lesið saman, upphátt eða í hljóði, eina síðu í einu. Appið man hvar þið hættuð og getur flett sjálft. Þar sem framhaldið er á vefnum birtist QR-kóði að lesaranum. VEGGUR SEM VERÐUR AÐ LIFANDI MÁLVERKI Skoðið list, plaköt og myndasögur af veggnum. Opnið myndasýningu eða leyfið verkinu að taka við skjánum þegar fjarstýringin fær að hvíla. LÍF Í STOFUNNI Á heimaskjánum mætast dagskráin, verk af veggnum, myndasögur og leikir. Um helgar bætast við helgarleikur og helgarlisti. Frá kvöldi til morguns dimmir viðmótið svo skjárinn lýsi síður upp stofuna. Appið er á íslensku, ókeypis og án innskráningar. Nettenging er nauðsynleg fyrir dagskrá og efni. Sófanöfn, lesstaða og stillingar eru vistuð á Apple TV-tækinu. Hægt er að tilkynna og fela notendaefni í appinu. Sjónvarpið frá Líf. Gerum það saman. Hlaðni veggurinn færir samtölin í stofuna. Veldu þátt, hlustaðu frá upphafi og lestu með þar sem texti hefur verið birtur. Sýningartímar koma úr birtri vikudagskrá Sjónvarpsins. Sjálfvirk umritun er merkt sérstaklega. Kynnstu fólkinu á bak við verkin. Farðu úr samtali á höfundasíðu, skoðaðu verk og skannaðu kóða til að lesa áfram í símanum. Birtir kaflar fá nákvæmar tilvísanir; höfundar, einstakar sögur og safnrit eru aðgreind.
Show more

What's New in Sjónvarpið

1.3.1

November 1, 2026

Veðrið á landinu. • Veðurskjáir Sjónvarpsins sýna nú spá Veðurstofu Íslands fyrir átta staði, með veðurtáknum líf.is, hita og vindi. Spáin endurnýjast á tíu mínútna fresti. • Nýjasta Líf-letrið, með betra bili á eftir ð og íslenskum gæsalöppum.

More

Developer apps