
Snjallmiðar
Finndu allt sem þú átt
0 ratings
Free
In-App Purchases
Rating summary
About
Þú settir jólaseríuna í kassa í fyrra. Kassinn fór upp á háaloft, eða í geymsluna, eða í bílskúrinn. Núna er desember og þú ert að opna fjórða kassann.
Snjallmiðar leysa þetta. Þú límir QR-miða á kassann, skannar hann með símanum og skráir hvað er í honum — nöfn, magn, myndir. Næst þegar þú leitar að jólaseríunni slærðu inn „sería“ og sérð samstundis: Jólaskraut, háaloft, hilla 2.
SVONA VIRKAR ÞAÐ
Límdu miða á kassa, bala, hillu eða skúffu.
Skannaðu miðann. Kassinn opnast í appinu.
Skráðu hvað er í honum, með myndum ef þú vilt.
Leitaðu seinna. Appið segir þér í hvaða kassa hluturinn er og hvar sá kassi stendur.
ÞAÐ SEM SKIPTIR MÁLI
• Virkar án nettengingar — eignaskráin er á símanum þínum • Samstillist milli tækja með sama reikningi • Staðir: settu miða á stað — „Bíll nr. 1“, geymsluna, háaloftið — og sjáðu alla kassana sem standa þar • Litamerkingar og tegund íláts til að halda yfirsýn • Skannaðu miða með myndavélinni eða sláðu kóðann inn • Prentaðu nýjan miða ef sá gamli skemmist • Færðu hluti milli kassa þegar þú tekur til
SNJALLMIÐAR PRÓ
Áskrift fyrir þá sem vilja meira út úr eignaskránni:
• Snjallgreining mynda: taktu eina mynd af innihaldinu og fáðu tillögur að nöfnum á hlutina • Deildu stað, völdum miðum eða allri eignaskránni með fjölskyldu eða starfsfólki — veldu hvort fólkið má breyta eða aðeins skoða, og taktu aðganginn til baka hvenær sem er • PDF-útflutningur allrar eignaskrárinnar, með myndum • CSV fyrir Excel, með íslenskum stöfum • Ítarleg röðun og síun, meðal annars eftir stað • Magntalning með sögu • Síðasti notkunardagur með áminningum — fyrir matvæli, lyf, slökkvitæki • Sérsniðnir reitir á hluti
LÍMMIÐARNIR
Tilbúnir QR-límmiðar fást inni í appinu og eru sendir heim (innanlands á Íslandi), í tveimur stærðum: 45 mm miðar fyrir kassa og bala, og litlir 16 mm miðar fyrir skúffur, verkfæri og smáhluti. Hver miði er númeraður og litaður, svo „Miði nr. 12“ í bláu verður sjálfkrafa blár miði í appinu sem heitir það sama.
PERSÓNUVERND
Gögnin þín eru á símanum og samstillt við vefþjóna innan Evrópska efnahagssvæðisins. Engar auglýsingar, engin greiningarforrit, engin rakning.
Skilmálar: https://snjallmidar.is/skilmalar Persónuvernd: https://snjallmidar.is/personuvernd
Show more
What's New in Snjallmiðar
1.0.1
November 7, 2026
- Skrá út bíður nú eftir að allar breytingar hafi borist þjóninum. Ef eitthvað er ósent er spurt fyrst, svo ekkert glatist. - Innskráningarskjárinn segir hvernig síðast var skráð inn á símanum (Apple eða netfang), svo auðvelt sé að komast aftur í sama reikning og sömu miða.
More3
Subscriptions & In-App Purchases
Snjallmiðar Pró
Árs árskrift
$49.991 Year
7 Days trial




