Skanna

Skanna

Kvittanir beint í bókhaldið

0 ratings
Free

Rating summary

Details

Released
October 29, 2026
Updated
November 12, 2026

Features

Skanna screenshot #1 for iPhone
Skanna screenshot #2 for iPhone
Skanna screenshot #3 for iPhone
Skanna screenshot #4 for iPhone
Skanna screenshot #5 for iPhone
Skanna screenshot #6 for iPhone
Skanna screenshot #7 for iPhone
🖼️Get Icon
Icons↘︎

About

Skanna breytir kvittun, reikningi eða fylgiseðli í PDF-skjal og þú sendir það á netfangið sem þú hefur skráð. Appið virkar strax, án aðgangs og án þjóns: PDF-skjalið verður til í símanum, fer með póstforritinu þínu og er geymt í símanum með kóða, tegund, athugasemd og stöðu. Myndavélin finnur brúnir skjalsins og réttir það af. Þú velur ham eftir því hvernig frumritið er: svart-hvítt fyrir venjulega kvittun, grátt fyrir upplitaðan strimil og lit fyrir stimplað eða handskrifað skjal. Birtu og skerpu má stilla áður en sent er. Þú getur líka valið myndir úr myndasafninu og bætt mörgum síðum í sama skjalið. Sé skjalið þegar til sem PDF velurðu það beint úr Skjölum — eða deilir því í Skanna úr pósti, vafra eða öðru appi — og þá fer skráin óbreytt í viðhengið undir sínu eigin nafni. Fyrirtæki sem reka Skanna-þjón geta tengt appið við hann í stillingum. Þá fer sendingin um póstþjón fyrirtækisins (eða þinn eigin, ef skeytin eiga að koma úr þínu netfangi), sagan er geymd á þjóninum og skjal sem kemst ekki strax af stað bíður í útboxi og sendist sjálfkrafa þegar sambandið kemur aftur. Þegar sendingin er staðfest eyðast myndirnar af þjóninum. Skanna Pro er valkvæð áskrift sem bætir við sjálfvirkri sendingu, sendingu úr þínu eigin netfangi og sögu í appinu og á vefnum. Aðganginn stofnarðu í appinu og nýir áskrifendur fá 7 daga ókeypis prufu. Áskriftin endurnýjast sjálfkrafa nema henni sé sagt upp minnst sólarhring fyrir lok tímabils, og henni er stjórnað í stillingum Apple-reikningsins. Skilmálar: https://skanna.snjallmidar.is/skilmalar.php Persónuvernd: https://skanna.snjallmidar.is/personuvernd.php Engin rakning, engin auglýsinganet og engin gögn seld.
Show more
+3

What's New in Skanna

1.4

November 12, 2026

Birta og skerpa stillast nú sjálfkrafa fyrir hverja síðu. Pappírinn verður hvítur og letrið dökkt, hvort sem myndin er tekin í skugga, af upplituðum strimli eða skönnuð björt. Rennurnar fínstilla frá sjálfvirka gildinu og hnappurinn „Sjálfvirkt“ setur þær aftur á upphafsstöðu. Skjal sem sent er á annað netfang fer þangað eingöngu, ekki líka í Payday.

More

Developer apps