Lærum og leikum - Allt

Lærum og leikum - Allt

Details about Lærum og leikum

  • Released
  • Updated
  • iOS Version
  • Age Rating
  • Size
  • Devices
  • Languages

Features

Developer of Lærum og leikum

🙌4
Ratings
🗣❌ unsupported
Your locale

Version History of Lærum og leikum

3.0

September 20, 2024

Appið hefur verið grunnkóðað frá grunni í nýtt kerfi sem bætir virkni. Nýr hljóðtengileikur sem undirbýr læsi og réttan framburð hefur verið þróaður í appið með nýjum íslenskum teikningum og hljóðgögnum. Ýmis uppsetning endurbætt, ný mynd af síma. Aðgangsstýring/foreldravörn hefur verið aukin og öll áhætta takmörkuð á notkun kennslukerfisins. Ef valið er að skrá framfarir nem. er unnt að hafa þær dulkóðaðar. Kyn er ekki skráð. Engar myndir vistast í myndasafni iPadsins eða eru sendar úr tækinu. Enginn aðgangur þriðja aðila er að gögnum. Engar auglýsingar. Rannsóknir sýna góðan árangur af notkun forritsins og forritið er nú uppfært svo allir njóti! Góðar stundir í að læra og leika!

More

2.6

June 2, 2017

This app has been updated by Apple to display the Apple Watch app icon. Við erum alltaf á tánum að bæta virknina hjá okkur. Við fengum nýlega 5 stjörnu viðurkenningu frá Educational App Store með lofsamlegum ummælum frá fagnefndinni þeirra og auðvitað erum við ennþá í skýjunum með Bett 2016 viðurkenninguna og val um að vera eitt af sex bestu forritum í menntun á heimsvísu. Rannsóknir sýna góðan árangur af notkun forritsins og forritið er nú uppfært svo allir njóti með okkur. Góðar stundir í að læra og leika!

More

2.5

November 5, 2016

iOS 10 update

2.3

December 12, 2015

Enska smáforritið Kids Sound Lab hefur verið valið í lokaúrslit BETT 2016 undir smáforrit í MENNTUN. Það er ensk útgáfa af Lærum og leikum með hljóðin og byggir á sömu aðferðafræði til að kenna hljóðmyndun, orðaforða og undirbúa læsi.

More

2.2.1

October 12, 2015

Leikurinn er kominn í iPhone útgáfu auk Ipad útgáfunnar. Virkar í iPhone 4 en ekki eins vel og í nýrri tæki. Bætt notendaviðmót. Hraðari virkni í smáforritinu. Enska smáforritið Kids Sound Lab hefur verið valið í lokaúrslit BETT 2016 undir smáforrit í MENNTUN. Það er ensk útgáfa af Lærum og leikum með hljóðin og byggir á sömu aðferðafræði til að kenna hljóðmyndun, orðaforða og undirbúa læsi.

More

2.2

October 9, 2015

Leikurinn er kominn í iPhone útgáfu auk Ipad útgáfunnar. Virkar í iPhone 4 en ekki eins vel og í nýrri tæki. Bætt notendaviðmót. Hraðari virkni í smáforritinu.

More

2.1

February 26, 2015

- crash in sound balloon level on multitouch fixed - localisation for in-app purchase of complete content renamed - new app icon

More

2.0

February 9, 2015

- Sólin útskýrir öll hljóðaborð og leiki þegar smellt er á hana alveg frá fyrstu valmynd - Fleiri orðum bætt við í hverju hljóðaborði - Setningar við öll orð í boði þegar smellt er á viðtæki neðst til hægri - Bluetooth bug fix - Hljóðgreiningarborð - nýr leikur í enda hljóðaborðs. Hljóðið sem æft er hverju sinni er parað við hljóðið sem kemur á undan í valmyndinni/erfiðleikaröð hljóðanna - Dropbox vistun, backup/restore - Hægt að velja af/á að spila bakgrunnstónlist - Hljóðstyrk hægt að hækka/lækka - Foreldravörn/parental gate - Engar auglýsingar

More

1.3

November 4, 2013

Fix for iOS 7 users - icon displays correctly - buttons and label are looking better in iOS7

More

1.1

August 16, 2013

* Texts updated * Links for rating app and sharing app updated * Icelandic is now default in localisation

More

Price History of Lærum og leikum

Description of Lærum og leikum

Öll íslensku málhljóðin eru kennd á lifandi og skemmtilegan hátt með fyrirmynd fyrir hvert og eitt hljóð. Heiti bókstafanna og hljóð þeirra eru kennd með íslenska fingrastafrófinu um leið og lestrarferlið er undirbúið. Á sama tíma er réttur framburður hljóða kenndur. Aðferðin byggir á áratuga reynslu talmeinafræðings með áherslu á að veita aðgengilega og faglega leiðsögn til foreldra og skóla. Smáforritið er ætlað öllum barnafjölskyldum og fagfólki sem vilja veita börnum forskot á hljóðmyndun og undirbúa þau fyrir lestur. Tilvalið fyrir fjölskyldur af erlendum uppruna til að æfa og læra íslensku hljóðin. Rannsóknir sýna marktækan mun á árangri nemenda í 1. bekk í hljóðkerfisvitund og bókstafaþekkingu auk betri getu í heildina á orðaforða þegar skipulega var unnið með Lærum og leikum með hljóðin og Froskaleiki 1,2,3 á leikskólaaldri og í 1. bekk (Gudmundsdottir, 2014. Ævarsdóttir, 2016). Smáforritin Kids Sound Lab PRO og Frog games sem byggja á íslensku forritunum hafa fengið fjölda erlendra viðurkenninga hjá fagaðilum og foreldrum. Árið 2016 var Kids Sound Lab valið eitt af sex bestu forritum í menntun á heimsvísu af BETT. Frá 2017 hafa forrit Raddlistar fengið 5 stjörnu gjöf og viðurkenningu hjá fagnefnd Educational App Store með afar lofsamlegum umsögnum. Smáforritið, Lærum og leikum með hljóðin, tekur mið af því í hvaða röð íslensk börn tileinka sér talhljóðin í máltökunni og hvernig auðveldast er að kenna hljóðin. Byrja má skipulega á auðveldari hljóðum sem koma fyrir hjá mjög ungum börnum og halda áfram yfir í þau hljóð sem erfiðara er að segja eða velja það hljóð sem æfa þarf sérstaklega hverju sinni. Lærum og leikum með hljóðin er notað víða í leik- og grunnskólum á Íslandi og er sýnt í barnaefni Stöðvar 2 og um allan heim í Hopster appi Vodafone. Efnistök forritsins byggja á samnefndum bókum og námsefni Bryndísar Guðmundsdóttur talmeinafræðings. Lærum og leikum með hljóðin inniheldur: - Talsetning/söngur Felix Bergsson og Védís Hervör Árnadóttir - Íslenskar teikningar Búa Kristjánssonar og Höllu Sólveigar Þorgeirsdóttur - 20 samhljóð í íslensku kynnt með táknmynd fyrir hljóðið - Sérhljóð í íslensku kynnt sérstaklega - Röð samhljóða fylgir sömu röð og íslensk börn tileinka sér talhljóðin í máltökunni - Hægt er að velja í aðalvalmynd hvaða hljóð er valið hverju sinni ef ekki er stuðst við erfiðleikaröðina - Hægt er að fá lýsingu á talfærastöðu fyrir hvert hljóð - Öll hljóðin eru æfð í hljóðaleik með hljóðakeðjum; samhljóð með sérhljóði til að tryggja að barnið nái réttu hljóði - Hljóðtenging er æfð til að undirbúa læsi og styrkja framburð málhljóðanna - Hljóðin æfð í framstöðu orða nema þau hljóð sem koma eingöngu fyrir í miðju og aftast í orðum - Ð, NG og ,,mjúka” G, eru æfð aftast og í miðju orða - R býður upp á meiri aðlögun og fleiri orð í framstöðu orða til að æfa (algengt að börn eigi erfitt með framburð R- hljóðsins) - Fjórir gagnvirkir leikir auk orðforðaaæfinga með þjálfun setninga - Hrós veitt reglulega í forritinu - Upptaka leyfð á orðum og setningum til að æfa og hlusta en vistast ekki í snjalltækinu - Foreldravörn aukin -Skráning nemenda: nafn, aldur. Engar myndir vistast í tækjum og eða fara í sendingu - Stigagjöf inni í forritinu - Árangur sýndur í % - Skráning athugasemda inni í forritinu - Upplýsingar um stöðu og athugasemdir má senda í netpósti. Engar myndir áframsendar. - Hægt er að prenta út samantekt niðurstaða (air print). Engar myndir fara í prentun gagna - Vistun og sending minnir á verndun gagna m.t.t. Persónuverndar - Engar auglýsingar Mennta- og barnamálaráðuneytið, Þróunarsjóður námsgagna og Uppbyggingarsjóður Suðurnesja styrktu nýja útgáfu Lærum og leikum með hljóðin frá grunni í opna útgáfu iOs og vefútgáfu. Við þökkum tölvunarfræðideild HR og Therapy Box fyrir samstarfið. Frekari upplýsingar: http.www.youtube/laerumogleikum www. laerumogleikum.is
Show less

Lærum og leikum: FAQ

Is there an iPad version available for Lærum og leikum?

Yes, the Lærum og leikum app is compatible with iPads.

Who launched the Lærum og leikum app?

The Lærum og leikum app was released by Raddlist ehf.

What is the minimum iOS version needed for Lærum og leikum to work?

The minimum iOS requirement: 13.4.

What user rating does the app have?

Lærum og leikum has an exceptional rating of 5 out of 5, which is a testament to its quality.

What is the main genre of the Lærum og leikum app?

Education Is The Primary Genre Of The Lærum Og Leikum App.

What is the current version of Lærum og leikum?

3.0 is the latest released Lærum og leikum version.

When did the last Lærum og leikum update come out?

Lærum og leikum’s most recent update was on September 20, 2024.

When did Lærum og leikum get launched?

The app first launched on February 5, 2023.

What age rating is assigned to Lærum og leikum?

Safe for children to use, no mature themes or inappropriate content.

Which languages does Lærum og leikum support?

Lærum og leikum currently features the following languages: English.

Is Lærum og leikum part of the Apple Arcade gaming experience?

No, Lærum og leikum is not on Apple Arcade.

Is Lærum og leikum integrated with in-app purchases?

No, Lærum og leikum does not integrate in-app purchases for users.

Is Lærum og leikum tailored for Apple Vision Pro compatibility?

Unfortunately, Lærum og leikum is not tailored for compatibility with Apple Vision Pro.

Does Lærum og leikum include ads as part of its experience?

No, Lærum og leikum does not include ads as part of its experience.

Video & Screenshots of Lærum og leikum

Lærum og leikum - Allt video #1 for iPhone
Lærum og leikum - Allt screenshot #2 for iPhone
Lærum og leikum - Allt screenshot #3 for iPhone
Lærum og leikum - Allt screenshot #4 for iPhone
Lærum og leikum - Allt screenshot #5 for iPhone
Lærum og leikum - Allt screenshot #6 for iPhone
iphone
ipad

Alternatives to Lærum og leikum

More Applications by Raddlist ehf

Reviews of Lærum og leikum

  • Bjarnveig

    Frábært app fyrir breiðan aldurshóp.
  • Nýtist vel samhliða stafainnlögn

    Lærum og leikum með hljóðin er gagnvirkt, fangar athygli og gerir vinnu með framburð að skemmtilegum leik. Hentar vel samhliða stafainnlögn í kennslu og til auka æfinga. Áhrifaríkt og skemmtilegt fyrir börn, foreldra og kennara.
  • Þóra Kolbrún Magnúsdóttir

    Loksins,loksins

    Eftir marga tíma hjá talmeinafræðing með elsta strákinn okkar er loksins komið frábært kennsluefni sem við foreldrarnir getum nýtt heima.Er með 3 börn sem eiga öll eftir að hafa gagn og gaman af þessu stórsniðuga appi;)